Alþjóðlegt samstarf
Lyfjastofnun er hlekkur í keðju lyfjastofnana á Evrópska efnahagssvæðinu. Umfangsmikið samstarf er milli þessara stofnana og Lyfjastofnunar Evrópu í Amsterdam.
Samstarfið nær m.a. til útgáfu markaðsleyfa, skráningu aukaverkana, og eftirlits með fyrirtækjum og stofnunum sem sýsla með lyf. Samstarfið nær einnig til upplýsingakerfa og hafa margvíslegir samevrópskir gagnagrunnar og tölvukerfi á sviði lyfjamála verið þróaðir eða eru í þróun. Þetta samstarf hefur m.a. haft í för með sér að starfsmenn Lyfjastofnunar taka þátt og leysa verkefni í sérfræðinganefndum bæði á vegum EMA, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og forstjóra lyfjastofnana Evrópska efnahagssvæðisins, HMA (Heads of Medicines Agencies).
Lyfjastofnun tekur virkan þátt í starfi Evrópsku lyfjaskrárnefndarinnar á vegum Evrópuráðsins í Strassborg (Ph.Eur.) og samstarfi lyfjaeftirlitsmanna Pharmaceutical Inspection Cooperation Scheme, PIC/S.
Evrópskt samstarfsverkefni
Lyfjastofnun er virkur þátttakandi í verkefni Evrópusambandsins sem er undir hatti verkefnisins EU4Health og nefnist EU4H11
Verkefnið er samstarfsverkefni 39 stjórnvalda frá 29 löndum á Evrópska efnahagssvæðinu og er styrkt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þær stofnanir sem taka þátt í verkefninu eiga það allar sameiginlegt að fara með gæðaeftirlit með lyfjaframleiðslu og dreifingu í sínum löndum, líkt og Lyfjastofnun.Verkefnastjórn er í höndum austurrísku lyfjastofnunarinnar sem nýtur liðsinnis frá lyfjastofnunum í Frakklandi, Króatíu og Ungverjalandi.
Markmið verkefnisins eru að:
Styrkja úttektaráætlun og eftirlit með eftirlitsstofnunum sem sinna eftirliti með lyfjaframleiðendum innan Evrópska efnahagssvæðisins á vegum JAP (Joint Audit Programme)
Koma með tillögu um hvernig er unnt að bæta eftirliti með heildsöludreifingu lyfja í úttektaráætlun JAP
Setja á fót samræmda þjálfun fyrir eftirlitsmenn
Verkefnið er fjármagnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Lyfjastofnun. Vinsamlega nýtið "Hafa samband" form á forsíðu þessa vefs. Að auki má nálgast frekari upplýsingar hjá austurrísku lyfjastofnuninni.


Fyrirvari: Þetta verkefni er fjármagnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Skoðanir og viðhorf sem koma fram eru höfundarins og þurfa ekki að endurspegla skoðanir Evrópusambandsins eða HaDEA. Hvorki Evrópusambandið né sú stofnun sem veitti leyfi til þáttöku bera ábyrgði á þeim.
