Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Greiðsluþátttaka

Lyfjastofnun gegnir því hlutverki að ákvarða hámarksverð í heildsölu og smásölu á ávísunarskyldum lyfjum, öllum dýralyfjum og greiðsluþátttöku lyfja.

Lyfjastofnun flokkar einnig hvort lyf eru leyfisskyld eða almenn auk þess að raða sambærilegum lyfjum í viðmiðunarverðflokka. Þá annast Lyfjastofnun útgáfu lyfjaverðskrár. Ákvarðanir Lyfjastofnunar í málaflokknum eru birtar í lyfjaverðskrá og í listum á vef stofnunarinnar. Sjá nánar neðst á þessari síðu.

Greiðsluþátttaka leyfisskyldra lyfja

Lyfjastofnun tekur ákvörðun um hvort lyf skuli skilgreint sem leyfisskylt og hvort ábending lyfsins hafi greiðsluþátttöku að fenginni umsögn lyfjanefndar Landspítala. Ákvarðanir um leyfisskyld lyf og ábendingar með samþykktri greiðsluþátttöku eru birtar hér. Lyfjanefnd Landspítala tekur ákvarðanir um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku leyfisskyldra lyfja.


Leiðbeiningar, umsóknareyðublöð og annað gagnlegt efni

Greiðsluþátttöku almennra lyfja

Lyfjastofnun ákveður hvort Sjúkratryggingar taki þátt í að greiða almenn lyf sem eru á markaði hér á landi að höfðu samráði við Sjúkratryggingar Íslands. Almenn greiðsluþátttaka er þegar Sjúkratryggingar taka þátt í að greiða lyf að hluta eða öllu leyti.

Einstaklingsbundin greiðsluþátttaka er stök eða tímabundin greiðsluþátttaka vegna lyfja sem ekki hafa hlotið almenna greiðsluþátttöku. Einstaklingsbundin greiðsluþátttaka er veitt með útgáfu lyfjaskírteina. Læknir getur sótt um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku með því að sækja um lyfjaskírteini fyrir einstakling til Sjúkratrygginga að uppfylltum skilyrðum samkvæmt vinnureglum.

Vinnureglurnar eru aðgengilegar á vef Sjúkratrygginga.

Vakni spurningar um lyfjaskírteini skal hafa samband við Sjúkratryggingar sem sjá um útgáfu þeirra.


Leiðbeiningar, umsóknareyðublöð og annað gagnlegt efni

Birting ákvarðana um verð og greiðsluþátttöku

Yfirlit yfir skjöl þar sem ákvarðanir Lyfjastofnunar í verð- og greiðsluþátttökumálum eru birtar. Í flestum tilvikum er um að ræða lyfjaverðskrá. Hún er gefin út einu sinni í mánuði sem Excel-skjal og tekur gildi fyrsta hvers mánaðar.