Verð og röðun í viðmiðunarverðflokka
Lyfjastofnun skal samkvæmt lyfjalögum taka ákvörðun um hámarksverð lyfja og greiðsluþátttöku, að fenginni umsókn lyfjafyrirtækis. Í reglugerð um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku er ákvæði um að taka skuli mið af verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku annars staðar á Norðurlöndum, svo ná megi markmiðum lyfjalaga um að halda lyfjakostnaði í lágmarki.
Leiðbeiningar, umsóknareyðublöð og annað gagnlegt efni
Hér eru því birt gögn sem nota á við umsóknir lyfjafyrirtækja og úrvinnslu Lyfjastofnunar.
Upplýsingar frá Norðurlöndunum
Hér birtast skrár og yfirlitssíður frá ríkjum hinna Norðurlandanna. Nota á birt verð í umsóknum og við ákvörðun lyfjaverðs og greiðsluþátttöku.
Röðun í viðmiðunarverðflokka
Lyfjastofnun raðar samheitalyfjum, líftæknilyfjahliðstæðum og lyfjum með sambærileg meðferðaráhrif í viðmiðunarverðflokka til ákvörðunar greiðsluþátttöku sjúkratrygginga auk lyfja án greiðsluþátttöku. Viðmiðunarverðflokkarnir eru ígildi skiptiskrár. Framkvæmd röðunar er samkvæmt verklagi sem birt er á vef Lyfjastofnunar og upplýsingar birtast í lyfjaverðskrá. Víki stofnunin frá almennu verklagi við röðun í viðmiðunarverðflokka birtast upplýsingar í frávikalista.
