Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þjónustusvið

Þjónustusvið

Þjónustusvið ber ábyrgð á og rekur allt miðlægt tölvukerfi lögreglu, ákæruvalds og Útlendingastofnunar. Sviðið ber sömuleiðis ábyrgð á lokuðu víðneti lögreglunnar og þeim gagnaflutningi og gagnasamskiptum sem fram fara á því neti.

Þá heyra samskipti við lögreglu og almenning til sviðsins. Má þar nefna:

  • móttöku og afgreiðslu neyðarsímtala,

  • samskipti við fjölmiðla,

  • ábyrgð á rekstri innra- og ytra nets lögreglu,

  • móttaka erinda frá stofnunum og einstaklingum,

  • ábyrgð á útgáfu tölfræðiupplýsinga og greininga,

  • gerð þolendakannana.

Deildir innan þjónustusviðs eru:

  • Fjarskiptamiðstöð

  • Gagnavísinda- og upplýsingadeild

  • Hugbúnaðarþróunardeild

  • Notendaþjónusta og rekstrardeild

Fjarskiptamiðstöð

Miðstöðin ber ábyrgð á móttöku neyðarsímtala og tilkynninga til lögreglu á landsvísu. Samhliða stýrir fjarskiptamiðstöð útkallsstýringu alls útkallsliðs lögreglu á landinu og fyrstu aðgerðum lögreglu á vettvangi.

Að auki veitir fjarskiptamiðstöð lögreglumönnum ýmiskonar aðstoð og þjónustu, til að mynda með uppflettingar í landskerfi, neyðarleit hjá fjarskiptafyrirtækjum og fleira.

Fjarskiptamiðstöð er stjórnstöð ríkislögreglustjóra vegna öryggismála æðstu stjórnar utan hefðbundins vinnutíma. Fjarskiptamiðstöð er mönnuð að fullu alla daga ársins, allan sólarhringinn.