Öryggissvið
Innan Öryggissviðs eru öryggisdeild og sérsveit ríkislögreglustjóra.
Öryggisdeild
Öryggisdeild hefur það meginmarkmið að efla öryggi starfsmanna embætta, dómstóla, ráðuneyta og starfsemi þeirra.
Sérsveit
Sérsveit ríkislögreglustjóra er hreyfanlegt lögreglulið sem er sérþjálfað til þess að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggismál, þar með talin hryðjuverk og stórfelld ofbeldisbrot.
Sérsveitin:
aðstoðar lögregluliðin í landinu,
annast handtökur hættulegra brotamanna og hústökuaðgerðir vegna fíkniefnamála,
sinnir köfunarverkefnum vegna rannsókna,
er liðsstyrkur fyrir almannavarnadeild þegar neyðarástand skapast.
Sérsveitin sinnir mikilvægu hlutverki varðandi hryðjuverkavarnir svo sem vegna árása, sprengjutilræða, gíslatöku, flugrána og sjórána. Sérsveitin ber þannig ábyrgð á aðgerðum vegna hryðjuverkaviðbúnaðar á sjó og landi.
Undir sveitina falla samningaviðræður við gíslatöku, viðbúnaður vegna sprengjutilfella og öryggisgæsla þegar á þarf að halda svo sem vegna erlendra heimsókna. Hjá sérsveit starfa meðal annars sprengjusérfræðingar og sprengjuleitarhundar.