Alþjóða- og landamærasvið
Innan Alþjóða- og landamærasviðs eru:
alþjóðadeild
ETIAS landseining
farþegaupplýsingadeild
heimferða- og fylgdadeild
landamæradeild
Meira um erlent samstarf lögreglunnar
Heimferða- og fylgdadeild
Deildin annast þjónustu við útlendinga sem dvelja á Íslandi í ólögmætri dvöl sem og þeim sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd. Deildin veitir leiðbeiningar um möguleika til heimfarar og heimfararastyrkja og fylgir málum eftir fram að brottför.
Fylgdadeild ber ábyrgð á lögreglufylgdum til og frá Íslandi á grundvelli ákvörðunar Útlendingastofnunar eða annarra þar til bærra stjórnvalda. Deildin styður við lögregluembættin í verkefnum sem upp koma varðandi mögulegar frávísanir og brottvísanir.
Innan heimferða- og fylgdadeildar starfa sérfræðingar að því að aðstoða fólk við sjálfviljuga heimför eða til ríkis sem það hefur heimild til dvalar. Í samstarfi við sérfræðinga deildarinnar er hægt að sækja um heimferðastyrk á vegum Frontex (Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu) og IOM (Alþjóðlega fólksflutningastofnunin ). Sérfræðingar deildarinnar bjóða upp á viðtalstíma sem hægt er að bóka í gegnum netfangið return@police.is
Upplýsingar um heimferðastyrki Frontex má finna hér.
Upplýsingar um heimferðastyrki IOM má finna hér.
Við Bæjahraun 16 rekur Heimferða- og fylgdadeild dvalarúrræði fyrir útlendinga sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og bíða fylgdar. Þar er gistipláss fyrir 90 einstaklinga á tveimur hæðum. Er það hlutverk lögreglu að meta hvort fresta eigi niðurfellingu á þjónustu 30 dögum eftir endanlega synjun við beiðni um alþjóðlega vernd.
Í því samhengi þarf að meta samstarfsvilja fólks. Sé samstarfsvilji fyrir hendi er hægt að framlengja þjónustu við viðkomandi þar til að fylgd kemur. Fólk með börn og fólk með mikla fötlun eða stuðningsþarfir missir ekki þjónustu að 30 dögum liðnum.