Um skotvopn og vörslur þeirra
18. mars 2026
Öll skotvopn skal geyma í viðurkenndum skotvopnaskáp. Skotfæri skulu vera í læstri hirslu, aðskilin frá skotvopnum. Þannig mega skotfæri vera í sama skáp og skotvopn, að því gefnu að þar sé aðskilið, læst hólf sem þau geymast í. Heimilt er að geyma skotvopn sín hjá öðrum skotvopnaleyfishafa, en þá þarf að senda inn lánstilkynningu þess efnis. Sjá hlekk hér að neðan.

Sýnum fulla aðgát í allri meðferð skotvopna og skotfæra, það er allra hagur.