Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Flæðirit um fyrstu viðbrögð við heimilisofbeldi gegn börnum

18. febrúar 2026

Lögreglan í samvinnu við Neyðarlínuna og fjölda samstarfsaðila hefur þróað flæðirit með skýrum leiðbeiningum um fyrstu viðbrögð við heimilisofbeldi sem barn verður fyrir. Flæðiritið er ætlað starfsfólki í skólum og á öðrum vinnustöðum þar sem unnið er með börnum.

Í Íslensku æskulýðsrannsókninni 2025 kom fram að 7% barna í 8. bekk og 9% barna í 10. bekk hafa orðið vitni að ofbeldi gegn foreldri sínu. Slíkt ofbeldi getur haft alvarleg áhrif á vellíðan og farsæld barns. Hlutfallið hefur farið lækkandi undanfarin ár á sama tíma og tilkynntum málum til lögreglu hefur fjölgað. Mikilvægt er að halda áfram að vinna gegn heimilisofbeldi, eða ofbeldi meðal skyldra og tengdra óháð staðsetningu.

Flæðiritið var kynnt á vinnufundi fyrir fagfólk af dómsmálaráðherra, Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna, sem fór fram fyrir áramót. Unnið er að dreifingu á flæðiritinu og því fylgt eftir af samfélagslögreglumönnum um land allt.

Markmið flæðiritsins er að tryggja:

  • Skýrt verklag þegar grunur vaknar um heimilisofbeldi gegn börnum

  • Samhæfð viðbrögð starfsfólks sem vinnur með börnum

  • Stuðning við þolendur

  • Aukna þekkingu á hvernig megi fyrirbyggja slík atvik og draga úr áhættu

  • Aðstoð við gerendur til að koma í veg fyrir frekari ofbeldishegðun

Flæðiritin um fyrstu viðbrögð við heimilisofbeldi gegn börnum má finna á vef 112 og á vef Miðstöðvar, menntunar og skólaþjónustu stoppofeldi.namsefni.is. Jafnframt má þar finna flæðirit um fyrstu viðbrögð við vopnaburði og kynferðisofbeldi gegn börnum.