Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heilsuskóli Barnaspítalans Hringsins

Þjónusta

Heilsuskólinn veitir börnum og unglingum meðferð við offitu, og þeim og fjölskyldum þeirra er leiðbeint um þyngdarstjórnun og heilbrigt líferni. Meðferðin snýst um að kenna aðferðir til að

  • ná og viðhalda heilbrigðri þyngd

  • bæta lífsgæði til lengri tíma

  • hvetja börnin áfram með styðjandi hætti

  • ráðleggja um mataræði

  • flétta hreyfingu inn í daglegt líf.

Ef tilfinninga- eða hegðunarvandi er til staðar er ráðlagt að leita meðferðar í viðeigandi meðferðarúrræði.

Viðmiðið í þjónustu Heilsuskólans

Börn og unglingar sem eru 2,5 staðalfrávikum fyrir ofan meðalkúrfu í BMI eða mikla þyngdaraukningu á stuttum tíma.

Inntökuviðtal

Í fyrstu komu fer fram inntökuviðtal sem tekur um 90 mínútur þar sem barn og forsjáraðili hittir lækni, hjúkrunarfræðing og íþróttafræðing.

  • Heilsuskólinn er kynntur og rætt er um lífsvenjur.

  • Farið í gegnum heilsufarssögu barns eða unglings.

  • Hæð, þyngd og blóðþrýstingur er mældur og tekið er ummál mittis og upphandleggs.

  • Barnið eða unglingurinn fær beiðni í blóðprufu.

Eftir viðtalið er þörf fyrir meðferð metin.

Meðferð í Heilsuskólanum

Í fyrstu komu eftir inntökuviðtal er málstjóri kynntur og barni og forsjáraðila kynnt næstu skref sem felast í því að barn og forsjáraðili sækir:

  • Regluleg viðtöl hjá meðferðaraðilum Heilsuskólans.

  • Hópfræðsla í eina klukkustund (3 skipti) þar sem foreldrar barna 7-11 ára mæta án barnsins.

  • Foreldrar 12-18 ára barna mæta ásamt barninu (3 skipti).

  • Þrír einstaklingstímar í markmiðasetningu þar sem barnið mætir með forsjáraðila.

  • Ef barni hentar ekki hópaúrræði er komið til móts við það.

Eftirfylgd

Barni er fylgt eftir á þriggja mánaða fresti í eitt ár og svo einu sinni á ári eftir það eða oftar eftir þörfum.
Stefnt er að langtímaeftirliti í nánu samstarfi við heilsugæslu viðkomandi barns og fjölskyldu.

Biðtími

Vegna fjölda umsókna getur biðtíminn verið langur.

  • Notið biðtímann vel og skoðið hvort fjölskyldan geti gert breytingar á lífsvenjum í samráði við tílvísanda.

  • Kynnið ykkur ráðleggingar um heilbrigðar lífsvenjur á heilsuveru.

Ef upp koma breytingar sem valda auknum vanda, ef ekki er lengur óskað eftir þjónustu Heilsuskólans eða ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlega látið vita á netfangið: heilsuskolinn@landspitali.is.