Barna og unglingageðdeild
Tilvísanir
Útfyllta Tilvísun til barna og unglingageðdeildar (.pdf). Tilvísandi fyllir út og læknir í heimabyggð eða annar læknir sem hefur sinnt barninu þarf að skrifa undir tilvísun og til að tryggja samfellu og eftirfylgd í meðferð barns. Hægt að er að fylla út rafrænt og prenta út.
Útfyllta Heimild til að afla og veita upplýsingar vegna tilvísunar (.pdf). Nauðsynlegt er að foreldrar skrifi undir Heimild til að afla og veita upplýsinga. Ef forsjáraðilar eru tveir, þurfa báðir að vera samþykkir tilvísun en nægilegt að einn skrifi undir
Frumgreiningu
Upplýsingar um vanda barnsins
Niðurstöður úr þroskamati, eins og WISC-IV eða WIPSI prófum,
Niðurstöður og tölulegar upplýsingar, prófílar annarra matslista og skimana eða greiningartækja,
Aðrar greiningar, niðurstöður og gögn sem geta varpað ljósi á málið.
Eftir að tilvísun berst
Allar tilvísanir á barna og unglingageðdeild berast til inntökuteymis.
Teymið metur stöðu mála og kannar hvort nægilegar upplýsingar liggi fyrir eða hvort kalla þurfi eftir frekari gögnum.
Ef þörf er á þjónustu göngudeildar fer barnið á biðlista, að öðrum kosti er málinu vísað aftur til tilvísanda.
Inntökuteymi fundar vikulega með bráðateymi. Metin er staða hvers máls, þörf á inngripum og hvernig eftirfylgd verður háttað.
