Skissum sýklalyfjaónæmi – götusýning um sýklalyfjaónæmi
20. júní - 1. ágúst 2026
Austurstræti, 101 Reykjavík

Sýningin Skissum sýklalyfjaónæmi fjallar um sýklalyfjaónæmi og áhrif þess á lýðheilsu, samfélög og vistkerfi um allan heim. Með skapandi og myndrænni framsetningu er þetta flókna viðfangsefni gert aðgengilegt fyrir almenning og athygli vakin á mikilvægi þess að vernda virkni sýklalyfja til framtíðar.
Verkin verða sýnd utandyra á sýningarstöndum í Austurstræti í sumar og gefa vegfarendum þannig tækifæri til að staldra við í daglegu amstri og upplifa sýninguna í almannarými.
Götusýningin er hluti af átakinu Sketching AMR, sem er skipulagt og fjármagnað af evrópska verkefninu EU JAMRAI 2, sem 30 ríki ESB/EES taka þátt í, þar á meðal Ísland.
Verkefnið nýtir listræna tjáningu til að auka vitund um sýklalyfjaónæmi með áherslu á hugtakið Ein heilsa (menn, dýr, umhverfi). Markmiðið er að hvetja til umræðu um sameiginlega ábyrgð okkar í baráttunni gegn þessari vaxandi áskorun.