Götusýningin Skissum sýklalyfjaónæmi opnar í Austurstræti
22. júní 2026
Götusýningin Skissum sýklalyfjaónæmi opnaði nýlega í Austurstræti í Reykjavík og stendur fram í ágúst.

Þessi farandsýning hófst í Vín og hefur ferðast til Varsjár, Brussel, Lyon, Rómar og Madrid. Sýningin leitast við að útskýra mikilvægi samstilltra aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi.
Skissum sýklalyfjaónæmi (Sketching AMR) er hluti af evrópska samstarfsverkefninu EU-JAMRAI 2, sameiginlegu átaki ESB/EES ríkja gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu.
Sýningin samanstendur af myndskreytingum 30 listamanna frá 30 Evrópuríkjum, en Hugleikur Dagsson er fulltrúi Íslands. Listafólkið fékk það verkefni að tengja saman listir og vísindi en herferðin nýtir skapandi og sjónræna miðla til að auka þekkingu á sýklalyfjaónæmi.
Skissurnar voru unnar út frá sjónarhorni Einnar heilsu (One Health), sem leggur áherslu á tengsl milli heilbrigðis fólks, dýra og umhverfis og undirstrikar að áskoranir á borð við sýklalyfjaónæmi verða ekki leystar innan eins geira heldur krefjast samstarfs og samræmdra aðgerða.
Sóttvarnalæknir hefur einnig fengið útprentuð albúm með myndunum sem dreift hefur verið til mennta-, heilbrigðis- og menningarstofnana um land allt. Með bókunum er leitast við að auka sýnileika verkefnisins og stuðla að aukinni vitund um sýklalyfjaónæmi og áhrif þess á heilbrigði fólks, dýra og umhverfis.
#europeancommission🇪🇺 #onehealth_eu #EUJAMRAI #SketchingAMR
Sóttvarnalæknir