Öndunarfærasýkingar - Vikur 13 og 14 2026
9. apríl 2026
Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram og hefur fjöldi greindra tilfella haldist svipaður síðustu vikur. Toppur var í desember 2025 og greindum tilfellum fækkaði upp úr áramótum og hafa haldist stöðug síðan.

Staðan á Íslandi
Að meðaltali greindust 16 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur.
Í viku 13 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 14 og í viku 14 var fjöldi greindra tilfella sjö og lágu tvö börn undir eins árs inni á Landspítala með RSV í síðustu viku. RSV bólusetningum hefur nú verið hætt þetta tímabil.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 13 og 14 (23. mars−5. apríl 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi var náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.
Í viku 13 greindust 11 tilfelli inflúensu, allt af tegund A, átta af undirtegundinni A(pdm09) og þrjú af A(H3). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Átta einstaklingar 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára og eitt barn undir 5 ára.
Í viku 14 greindist 21 tilfelli inflúensu, allt af tegund A og af undirtegundinni A(pdm09). Hluti þessa fjölda tilfella og inniliggjandi skýrist af hópsýkingum af völdum inflúensuveiru á tveimur deildum Landspítala í viku 14.
Í viku 13 voru fjórir einstaklingar inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, allir 65 ára og eldri. Í viku 14 voru 15 einstaklingar inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, 12 voru 65 ára og eldri og þrír 15−64 ára. Sjá mynd 2.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Aðeins fjögur tilfelli af tegund B hafa greinst hér á þessu tímabili það sem af er vetri.

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 14 árið 2026.
Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
RS-veirusýkingar
Að meðaltali hafa greinst 13 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Í viku 13 greindust 14 tilfelli RSV, fimm einstaklingar 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára, tvö börn 3−4 ára, þrjú börn 1−2 ára og tvö börn undir 1 árs.
Í viku 14 greindust sjö tilfelli RSV, tveir einstaklingar 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára, tvö börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs. Sjá mynd 3.
Þrír einstaklingar lágu inni á Landspítala með RSV í viku 13, tveir 65 ára og eldri og eitt barn 3−4 ára. Tveir einstaklingar lágu inni í viku 14, tvö börn undir 1 árs.

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 14 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).
Nú í vetur bauðst börnum sem voru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab. Þáttaka í RSV bólusetningum í vetur hefur verið mjög góð. Bólusetningum gegn RSV fyrir nýfædd börn hefur nú verið hætt þetta tímabil.
Sjá nánar frétt á vef embættis landlæknis.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 13 greindust fimm einstaklingar, einn 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og þrír 0−4 ára. Í viku 14 greindust sex einstaklingar, þrír 15−64 ára, tveir 5−14 ára og einn 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 5 tilfelli COVID-19 á viku.
Tveir einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með COVID-19 í viku 13, einn í aldurshópnum 65 ára og eldri og einn 1−2 ára. Í viku 14 var einn einstaklingur inniliggjandi með COVID-19, barn undir 1 árs.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af rhinoveiru,human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Í viku 13 greindust níu með human metapneumoveiru og 17 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2. Í viku 14 greindust 15 með rhinoveiru,13 með human metapneumoveiru og 10 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.
Staðan í Evrópu
Í flestum ríkjum ESB/EES hefur fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma verið í lágmarki, sem bendir til lítillar útbreiðslu öndunarfærasýkinga.
Útbreiðsla inflúensu og sjúkrahúsinnlögnum fer minnkandi í öllum aldurshópum. Undirtegundirnar A(H3) og A(H1)pdm09 eru ríkjandi.
Útbreiðsla RSV og fjöldi innlagna er enn mikill, og börn undir fimm ára aldri eru áfram stærsti hópur þeirra sem leggjast inn.
Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Að öllu óbreyttu koma næstu Öndunarfærafréttir út eftir tvær vikur.
Sóttvarnalæknir