Öndunarfærasýkingar - Vika 8 2026
26. febrúar 2026
Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram. Greindum tilfellum hefur fækkað undanfarið og virðist toppi hafa verið náð.

Staðan á Íslandi
Að meðaltali greindust 13 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Í viku 8 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 15 og lágu átta einstaklingar inni á Landspítala með RSV.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 8 (16.−22. febrúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi virðist hafa verið náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.
Í viku 8 greindust 14 tilfelli inflúensu, allt tilfelli af tegund A, þar af fjögur af tegund A(H3) og tíu af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: 11 einstaklingar 65 ára og eldri og þrír 15−64 ára. Fimm einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, fjórir 65 ára og eldri og einn 15−64 ára. Sjá mynd 2.

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 8 árið 2026.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst hér síðastliðnar 5 vikur en ekki er útilokað að geti greinst á næstu vikum.
Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
RS-veirusýkingar
Í viku 8 greindust 15 tilfelli RS-veirusýkingar (RSV), sex einstaklingar 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, einn 5−14 ára, fjögur börn 1−2 ára og þrjú börn undir 1 árs, sjá mynd 3. Átta einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, fimm 65 ára og eldri, tvö börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs. Að meðaltali hafa greindst 22 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur.
Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið um það bil fram til 31. mars 2026.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 8 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur en í viku 8 greindust níu einstaklingar, fimm 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára, einn 5−14 ára og einn 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 10 tilfelli COVID-19 á viku. Einn einstaklingur var inniliggjandi á Landspítala með COVID-19, í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest um þessar mundir mest af human metapneumoveiru og kórónuveirum, öðrum en SARS-COV-2, á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga (kvefi) verið á bilinu 10–30 en í viku 8 greindust 9 með rhinoveiru, 13 með human metapneumoveiru og 24 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.
Staðan í Evrópu
Í flestum ríkjum ESB/EES er fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn hár, sem bendir til að enn sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.
Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk en hefur almennt farið minnkandi undanfarnar vikur. Á heildina litið hefur sjúkrahúsinnlögnum fækkað frá áramótum, en einstaklingar 65 ára og eldri hafa verið stærsti hluti innlagna á tímabilinu. Inflúensa A(H3) er enn ríkjandi undirtegundin, en þar á eftir kemur A(H1)pdm09. Lítið útbreiðsla hefur verið af tegund B.
Útbreiðsla RSV er áfram aukin, þó hún sé mismikil eftir löndum. Börn undir fimm ára aldri eru stærsti hluti þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús af völdum RSV.
Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV-2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og sjúkrahúsinnlagnir eru fáar miðað við inflúensu og RSV.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Inflúensubólusetningar eru ekki lengur í boði.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir