Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 7 2026

19. febrúar 2026

Árlegur inflúensufaraldur er enn í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur farið fækkandi undanfarið og virðist toppi náð.

Staðan á Íslandi

Að meðaltali greindust 11 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Enginn einstaklingur var innlagður á Landspítala með eða vegna inflúensu eða COVID-19 í síðustu viku. Nokkrir dvöldu á bráðamóttöku í mislangan tíma með inflúensu. Í viku 7 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 19 og lágu níu einstaklingar inni á Landspítala með RS-veiru.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 7 (9.−15. febrúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur, toppi virðist náð en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1. Fjöldi greininga inflúensu. Vika 7

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 7 greindust 11 tilfelli inflúensu, allt tilfelli A, þar af þrjú af tegund A(H3) og átta af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Fimm einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og tvö börn undir 5 ára. Í viku 7 var enginn inniliggjandi á Landspítala með inflúensu. Sjá mynd 2.

Mynd 2. Fjöldi og aldur innlagðir. Vika 7

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 7 árið 2026.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst hér síðastliðnar 5 vikur en ekki er útilokað að geti greinst á næstu vikum.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 7 greindust 19 tilfelli RS-veirusýkingar (RSV), sex einstaklingar 65 ára og eldri, þrír 15−64 ára, einn 5−14 ára, sex börn 1−2 ára og þrjú börn undir 1 árs. Sjá mynd 3. Að meðaltali greindust 24 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Níu einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, fjórir 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, einn 5−14 ára og þrjú börn 1−2 ára. Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið um það bil fram til 31. mars 2026.

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

Mynd 3. Fjöldi með RSV. Vika 7

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 7 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis)

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur en í viku 7 greindust sjö einstaklingar, fimm 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og einn 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 12 tilfelli COVID-19 á viku. Enginn einstaklingur var inniliggjandi á Landspítala með COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 7 greindist 21 með rhinoveiru. Aðrar áberandi greiningar undanfarnar vikur eru human metapneumoveira og kórónuveirur aðrar en SARS-CoV-2. Í viku 7 greindust 10 tilfelli human metapneumoveiru og 18 tilfelli af kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2.

Staðan í Evrópu

  • Í flestum ríkjum ESB/EES er fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn hár, sem bendir til að enn sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk en hefur almennt farið minnkandi undanfarnar vikur. Á heildina litið hefur sjúkrahúsinnlögnum fækkað frá áramótum, en einstaklingar 65 ára og eldri hafa verið stærsti hluti innlagna á tímabilinu. Inflúensa A(H3) er enn ríkjandi undirtegundin, en þar á eftir kemur A(H1)pdm09.

  • Útbreiðsla RSV er enn mikil og heldur áfram að aukast. RSV tímabilið nú hófst síðar en síðustu tvö tímabil. Sjúkrahúsainnlagnir vegna RSV eru almennt að aukast, og börn undir fimm ára eru stærsti hópurinn sem leggst inn á spítala vegna þess

  • Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill miðað við inflúensu og RSV.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Allt inflúensubóluefni er komið í dreifingu.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir