Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 6 2026

12. febrúar 2026

Árlegur inflúensufaraldur er enn í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur verið mikill í vetur en hefur farið fækkandi undanfarið og virðist toppi náð.

Staðan á Íslandi

Að meðaltali greindust tæplega 14 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Fáir eru innlagðir á Landspítala með eða vegna inflúensu. Í viku 6 var áfram aukning á greiningum RS-veirusýkingu (RSV) og lágu 12 einstaklingar inni á Landspítala með RS-veiru.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 6 (2.−8. febrúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur, toppi virðist náð en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Tilfellum fjölgað lítillega síðustu tvær vikur. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1. Fjöldi greininga inflúensu. Vika 6

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 6 greindust 14 tilfelli inflúensu, allt tilfelli A, þar af 11 af tegund A(H3) og þrjú af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Sjö einstaklingar 65 ára og eldri og sjö 15−64 ára. Í viku 6 lágu átta einstaklingar á Landspítala með inflúensu, allir í aldurshópnum 65 ára og eldri. Sjá mynd 2.

Mynd 2. Innlagðir með inflúensu. Vika 6

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 6 árið 2026.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst hér enn sem komið er en ekki útilokað að það gerist.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 6 greindust 26 tilfelli RS-veirusýkingu (RSV), átta einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára, einn 5−14 ára, tvö börn 3−4 ára, fimm börn 1−2 ára og sex börn undir 1 árs. Sjá mynd 3. Að meðaltali greindust 17 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Tólf einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, fjórir 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára, þrjú börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs.

Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið um það bil fram til 31. mars 2026.

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

Mynd 3. RSV. Vika 6

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 6 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis)

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur en í viku 6 greindust 12 einstaklingar, tíu 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og einn 5−14 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 10 tilfelli COVID-19 á viku. Fimm einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, allir í aldursflokknum 65 ára og eldri.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 6 greindust 29 með rhinoveiru. Undanfarnar vikur hefur verið mikið af greiningum á human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 og í viku 6 greindust 17 og 23 tilfelli af þeim.

Staðan í Evrópu

  • Í ríkjum ESB/EES er fjöldi fólks með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn hár og hefur haldið áfram að aukast frá upphafi árs, sem bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk og í sumum löndum hefur toppnum verið náð en í öðrum löndum virðist toppurinn sé að nálgast. Börn á aldrinum 5−14 ára virðast vera helstu smitberarnir og aukning hefur sést bæði í vægum og alvarlegum tilfellum. Á heildina lítið hefur dregið úr sjúkrahúsinnlögnum frá upphafi árs, Einstaklingar 65 ára og eldri eru áfram í meirihluta sjúkrahúsinnlagna, innlagna á gjörgæslu og dauðsfalla. Inflúensa A er áfram ríkjandi, A(H1N1) og A(H3N2).

  • Útbreiðsla RSV er enn mikil og heldur áfram að aukast, en tímabilið hófst síðar en síðustu tvö tímabil. Áhrif RS-veirusýkinga er mest á börn yngri en fimm ára sem er sá aldurshópur sem er í meirihluta sjúkrahúsinnlagna.

  • Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill miðað við inflúensu og RSV

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Allt inflúensubóluefni er komið í dreifingu.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir