Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 5 2026

5. febrúar 2026

Árlegur inflúensufaraldur er enn í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur verið mikill í vetur en hefur farið fækkandi undanfarið og virðist toppi náð.

Staðan á Íslandi

Fáir eru innlagðir á Landspítala með eða vegna inflúensu. Í viku 5 var áfram aukning á greiningum RS veirusýkingu (RSV).

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 5 (26. janúar −1. febrúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur, toppi virðist náð en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð. (Sjá mynd 1 og mælaborð).

Mynd 1. Fjöldi greininga. Vika 5

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 5 greindust 11 tilfelli inflúensu, allt tilfelli A, þar af tíu af tegund A(H3) og eitt af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Sjö einstaklingar 65 ára og eldri og fjórir voru 15−64. Í viku 5 lágu sjö einstaklingar á Landspítala með inflúensu, sex voru 65 ára og eldri og einn 15–64 ára. Sjá mynd 2.

Mynd 2. Fjöldi innlagna. Vika 5

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 5 árið 2026.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst enn sem komið er en ekki útilokað að það gerist.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 5 greindust 30 tilfelli RS veirusýkingu (RSV), þrír einstaklingar 65 ára og eldri, sjö 15−64 ára, tveir 5−14 ára, 16 börn 1−2 ára og tvö börn undir 1 árs. Að meðaltali greindust 11 tilfelli á viku síðustu fjórar vikur. Tíu einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, einn 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og fimm börn 1−2 ára.

Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið.

Þátttaka í RSV bólusetningum er áfram góð og þær munu halda áfram í febrúar. Áætluð lok bólusetningartímabils eru 31. mars en faraldsfræði RSV ræður nokkru þar um. Átak næsta hausts mun ná til barna sem fæðast eftir að bólusetningum er hætt í vor.

Mynd 3. Þátttaka í RSV bólusetningum. Vika 5

Mynd 3: Þátttaka í RSV bólusetningunum hefur verið mjög góð.

RSV dreifing í vetur

Útbreiðsla RSV hefur verið mun minni en á sama tíma síðustu tvö ár (mynd 4). Þekkt er að RSV faraldrar eru mjög misþungir milli ára og er ekki hægt að eigna bólusetningum ungbarna minni útbreiðslu í öðrum aldurshópum. Hlutfallslega minna er um sýkingar hjá börnum á fyrsta æviári en við höfum vanist en vegna fárra greininga er ekki tímabært að áætla virkni bólusetninganna. Sýkingar hjá börnum í markhópi bólusetninga eru örfáar og um helmingur þeirra hefur ekki verið bólusettur fyrir sýkinguna. Einungis eitt barn undir 12 mánaða aldri hefur verið lagt inn á LSH með RSV en bólusetningasaga þess liggur ekki fyrir.

Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði sem er aðgengilegt á vef embættis landlæknis.

Mynd 4. RSV greiningar á SVEID. Vika 5

Mynd 4: RSV greiningar hjá sýkla- og veirufræðideild LSH hafa verið mjög fáar það sem af er vetri miðað við sömu tímabili sl. tvo vetur en fer fjölgandi.

Mynd 5. Aldursdreifing RSV. Vika 5

Mynd 5: Aldursdreifing RSV greininga hjá börnum á fyrsta ári. Tímabil 2023-2024 og 2024-2025 sýna aldursdreifingu allt RSV tímabilið.

Jafnvel þótt lítið hafi borið á RSV það sem af er vetri eru teikn um að aldursdreifing greininga sé frábrugðin því sem við höfum vanist og standa vonir til að hægt verði að sýna fram á góð áhrif bólusetninga gegn RSV á heilsufar ungra barna hér á landi.

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur en í viku 5 greindust 10 einstaklingar, sjö 65 ára og eldri og þrír 15−64 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 9 tilfelli á viku. Fjórir einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, tveir í aldursflokknum 65 ára og eldri og tveir 15−64 ára.

Bólusetningar

Meðal þeirra sem mælt er með árlegum inflúensubólusetningum hjá eru einstaklingar eldri en 60 ára og börn yngri en 5 ára. Þátttaka þeirra eldri var um 54% nú í vetur og þátttaka hjá yngri börnum um 23%. Allt bóluefni sem pantað var til landsins þennan veturinn er komið í dreifingu eða búið að nota.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 5 greindust 23 með rhinoveiru. Undanfarnar vikur hefur greiningum human metapneumoveiru fjölgað, í viku 5 greindust 22 tilfelli. Einnig hefur orðið fjölgun greininga á kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 undanfarnar vikur og greindust 23 tilfelli í viku 5.

Staðan í Evrópu

  • Í ríkjum ESB/EES er aukinn fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma í flestum ríkjum. Þetta bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk og í mörgum löndum virðist toppnum hafa vera náð. Síðustu 4 vikur hefur verið fækkun í greiningum frá því að toppi var náð en samkvæmt gögnum frá heilsugæslu eru vísbendingar um aukningu aftur, mest hjá börnum. Inflúensa A(H3N2) er áfram algengasta undirtegundin en A(H1N1)pdm09 er einnig að greinast. Fjöldi sjúkrahúsinnlagna fer lækkandi en aukning í innlögnum sést hjá börnum á aldrinum 5-14 ára og auk þess eru flestar innlagnir hjá einstaklingum 65 ára og eldri.

  • RSV greiningar halda áfram að aukast í flestum löndum. Í vetur hófst faraldurinn nokkrum vikum síðar samanborið við síðustu tvö ár. Innlögnum á sjúkrahús vegna RSV fer fjölgandi í flestum löndum, sérstaklega meðal barna undir fimm ára.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV2) sýkinga fer minnkandi í öllum aldurshópum, útbreiðsla er lítil og sjúkrahúsainnlagnir eru fáar.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Allt inflúensubóluefni er komið í dreifingu.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir