Öndunarfærasýkingar – Vika 49 árið 2025
11. desember 2025
Árlegur inflúensufaraldur er í gangi og ennþá á uppleið. Mörg tilfelli greinast um þessar mundir.

Mynd: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauða lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins (sjá mælaborð sóttvarnalæknis)
Inflúensan er fyrr á ferðinni en undanfarna vetur (sjá mynd og mælaborð). Einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu, einnig þó þeir hafi nú þegar í haust/vetur veikst af inflúensu (líklega eða staðfest). Lítið greinist af COVID-19 og RS-veiru.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 49 (1.−7. desember 2025). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Í viku 49 greindust 116 tilfelli inflúensu, allt inflúensutegund A, flest eða 83 af tegund A(H3) og 33 af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í öllum aldurshópum: 44 einstaklingar 65 ára og eldri, 37 voru 15−64 ára, níu voru 5−14 ára, 11 voru 1−4 ára og 15 undir eins árs.
Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur venjulega á tímabilinu október til mars. Inflúensan veldur mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin geta verið alvarleg. Þegar smit eru útbreidd er meiri hætta á að einstaklingar í áhættuhópum veikist með alvarlegri afleiðingum, álag eykst einnig á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Inflúensuveiran breytir sér nær stöðugt og því er samsetningu inflúensubóluefnis endurskoðuð árlega til að það haldi virkni. Þessar breytingar veirunnar geta leitt til misalvarlegra árlegra inflúensufaraldra og virkni bóluefnisins er einnig mismunandi ár frá ári. En jafnvel á árum þegar virkni bóluefnis er minni dregur það úr hættu á alvarlegum veikindum, sjúkrahúsinnlögnum og dauða, sérstaklega hjá áhættu hópum.
Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
Bólusetningar
Meðal þeirra sem mælt er með inflúensubólusetningum hjá eru einstaklingar eldri en 60 ára og börn yngri en 5 ára en þátttaka þeirra eldri er rétt um 50% eins og er og þátttaka hjá börnum er lág (mynd). Árleg bólusetning við inflúensu dregur úr veikindum einstaklinga sem smitast og minnkar einnig álag á heilbrigðiskerfi, veikindafjarvistir og útbreiðslu til annarra.

Mynd: Þátttaka í inflúensubólusetningum eftir aldurshópum á tímabilinu 2025–2026
Árleg bólusetning er enn í boði og hvetur sóttvarnalæknir eftirtalda hópa sérstaklega til að þiggja bólusetningu sem fyrst:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
Öll börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
Barnshafandi.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.
Hægt er að bóka tíma í bólusetningu á mínum síðum á heilsuveru eða með því að hafa samband við sína heilsugæslustöð.
Heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili
Sóttvarnalæknir hvetur heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili til að gera eigin ráðstafanir varðandi almennar sóttvarnir til að minnka smitdreifingu innan stofnunar á flensutímanum svo sem varðandi heimsóknir, notkun andlitsgríma og handhreinsun.
Innlagnir á Landspítala
Í viku 49 lágu 27 einstaklingur á Landspítala með inflúensu: 17 voru 65 ára og eldri, sex 15−64 ára, einn 3−4 ára og þrír 1−2 ára, sjá mynd.

Mynd: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu í innlögn á Landsspítala í viku 39−49 árið 2025.
Miðað við upphaf faraldra undanfarin ár og ef tekið er mið af fjölda greininga sést að fjöldi innlagna á Landspítala með eða vegna inflúensu á fyrstu 11 vikum faraldurs er mun hærri í ár en undanfarin ár (mynd).
Sjá einnig viðtöl í fjölmiðlum við yfirlækni á Barnaspítala og yfirlækni smitsjúkdómadeildar Landspítala um mikil veikindi á spítalanum undanfarið vegna inflúensu.

Mynd: Uppsafnaður fjöldi innlagna með/vegna inflúensu á Landspítala á fyrstu 11 vikum faraldurs (árið 2025 rautt).
Aðrar öndunarfærasýkingar
RS-veirusýkingar
RS-veiru (RSV) faraldur er ekki farinn af stað hérlendis en í viku 49 greindust fjögur tilfelli, tvö börn 1−2 ára og tvö börn undir eins árs.
Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið. Börn sem fæðast í vetur, um það bil fram til 31. mars 2026 munu geta fengið mótefni gegn RSV fljótlega eftir fæðingu.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu vikur. Í viku 49 greindust níu einstaklingar, fimm í aldursflokknum 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, einn 4−15 ára og tveir undir 5 ára. Tveir einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, einn eldri en 65 ára og einn 15−64 ára.
Aðrar veirur
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 20–40 en í viku 49 greindust 28 með rhinoveiru.
Staðan í Evrópu
Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma yfir viðmiðunarmörkum faraldurs í um það bil helmingi ríkja. Þetta bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla sýkinga.
Tíðni inflúensu heldur áfram að aukast og flest lönd greina frá víðtækri útbreiðslu. Inflúensa A er ríkjandi í öllum löndum þar sem undirtegundin A(H3N2) er algengust. Útbreiðsla er mest meðal barna 5−14 ára. Aukning sjúkrahúsinnlagna sést í sumum löndum í öllum aldurshópum en aðallega 65 ára og eldri.
Lítils háttar aukning er í útbreiðslu RSV en tíðni er lægri en undanfarna vetur. Aukning í innlögnum á sjúkrahús sést í nokkrum löndum, aðallega hjá börnum yngri en fimm ára.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV2) sýkinga fer minnkandi í öllum aldurshópum og sjúkrahúsainnlagnir eru fáar.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir