Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vika 48 árið 2025

4. desember 2025

Árlegur inflúensufaraldur er í gangi og mörg tilfelli greinast um þessar mundir. Inflúensan er fyrr á ferðinni en undanfarna vetur.

Mynd: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauða lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins (sjá mælaborð sóttvarnalæknis)

Einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu, einnig þó þeir hafi nú þegar í haust/vetur veikst af inflúensu (líklega eða staðfest). Lítið greinist af COVID-19 og RSV-veiru.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 48 (24.−30. nóvember 2025). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Í viku 48 greindust 80 tilfelli inflúensu, allt inflúensutegund A, flest eða 63 af tegund A(H3) og 17 af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í öllum aldurshópum: 31 einstaklingar 65 ára og eldri, 27 voru 15−64 ára, tíu voru 5−14 ára, átta 1−4 ára og fjórir undir eins árs.

Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur venjulega á tímabilinu október til mars. Inflúensan veldur mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin geta verið alvarleg. Þegar smit eru útbreidd er meiri hætta á að einstaklingar í áhættuhópum veikist með alvarlegri afleiðingum, álag eykst einnig á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Inflúensuveiran breytir sér nær stöðugt og því er samsetningu inflúensubóluefnis endurskoðuð árlega til að það haldi virkni. Þessar breytingar veirunnar geta leitt til misalvarlegra árlegra inflúensufaraldra og virkni bóluefnisins er einnig mismunandi ár frá ári. En jafnvel á árum þegar virkni bóluefnis er minni dregur það úr hættu á alvarlegum veikindum, sjúkrahúsinnlögnum og dauða, sérstaklega hjá áhættu hópum.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

Bólusetningar

Árleg bólusetning er enn í boði og hvetur sóttvarnalæknir eftirtalda hópa sérstaklega til að þiggja bólusetningu sem fyrst:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.

  • Öll börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.

  • Barnshafandi.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.

Hægt er að bóka tíma í bólusetningu á mínum síðum á heilsuveru eða með því að hafa samband við sína heilsugæslustöð.

Heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili

Sóttvarnalæknir hvetur heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili til að gera eigin ráðstafanir varðandi almennar sóttvarnir á flensutímanum til að minnka smitdreifingu innan stofnunar svo sem varðandi heimsóknir, notkun andlitsgríma og handhreinsun.

Innlagnir á Landspítala

Í viku 48 lá 21 einstaklingur á Landspítala með inflúensu: 11 voru 65 ára og eldri, fimm 15−64 ára, tveir 5−14 ára, einn 3−4 ára, einn 1−2 ára og eitt barn undir eins árs. Sjá mynd.

Mynd 2. Vika 48

Mynd: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu í innlögn á Landsspítala í viku 39-48 árið 2025.

Aðrar öndunarfærasýkingar

RS-veirusýkingar

RS-veiru (RSV) faraldur er ekki farinn af stað hérlendis en í viku 48 greindust tvö tilfelli, báðir einstaklingar yfir 65 ára.
Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab)auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið. Börn sem fæðast í vetur, um það bil fram til 31. mars 2026 munu geta fengið mótefni gegn RSV fljótlega eftir fæðingu.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu vikur. Í viku 48 greindust sjö einstaklingar, einn í aldursflokknum 65 ára og eldri, fimm 15−64 ára og einn undir 5 ára. Tveir einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, báðir 15-64 ára.

Aðrar veirur

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 20–40 en í viku 48 greindust 19 með rhinoveiru.

Staðan í Evrópu

  • Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn lítill, en tilfelli inflúensu fara ört vaxandi sem er óvenju snemma í samanburði við síðustu ár. Tilfelli COVID-19 eru stöðug eða á niðurleið í öllum aldurshópum. Útbreiðsla RSV er enn lítil en fer hægt vaxandi. Áhrif á sjúkrahúsainnlagnir eru enn lítil.

  • Inflúensutímabilið í ár hófst þremur til fjórum vikum fyrr en á síðustu tveimur árum. Faraldsfræði inflúensunnar er breytileg milli landa en í öllum löndum er langmest um inflúensu A þar sem undirtegundin A(H3N2) er meginvaldur aukningarinnar undanfarnar vikur. Útbreiðsla er mest meðal barna 5−14 ára. Í sumum löndum er farið að sjá auknar sjúkrahúsainnlagnir í öllum aldurshópum en aðallega 65 ára og eldri.

  • Lítils háttar aukning í útbreiðslu RSV er nú, um viku fyrr en í fyrra. Aukning sést bæði í gögnum frá heilsugæslu og sjúkrahúsum í nokkrum löndum, aðallega hjá börnum yngri en fimm ára.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir