Öndunarfærasýkingar – Vika 44 árið 2025
6. nóvember 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 44 árið 2025 (27. október−2. nóvember 2025).
Eins og áður koma langflest sýni til rannsóknar frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Greiningum á inflúensu hefur fjölgað síðustu vikur og í viku 44 greindust 37 tilfelli, þar af 17 með inflúensutegund A(pdm09) og 20 með tegund A(H3). Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en 14 einstaklingar voru 65 ára og eldri, 13 voru 15−64 ára, þrír 5−14 ára og sjö undir 5 ára.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
Árviss bólusetning gegn inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvum. Hægt er að bóka tíma á mínum síðum á heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar og eru þeir hópar sérstaklega hvattir til að þiggja bólusetningu:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.
RS-veirusýkingar
RS-veiru (RSV) faraldur er ekki farinn af stað og greindist ekkert tilfelli RS-veiru (RSV) í viku 44.
Einstofna mótefni gegn RSV (nirsevimab) fyrir yngstu börnin er komið í dreifingu til heilbrigðisstofnana. Nú í vetur býðst mótefnið börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðað í mánaðarlegar lyfjagjafir með palivizumab yfir RSV tímabilið. Börn sem fæðast í vetur, um það bil fram til 31. mars 2026 munu geta fengið mótefni gegn RSV fljótlega eftir fæðingu.
Nánari upplýsingar um RSV veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu vikur en virðist fara lækkandi. Í viku 44 greindust þrír einstaklingar, allir í aldursflokknum 65 ára og eldri.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Áfram greinist mest af rhinoveiru (kvefi) af öðrum öndunarfæraveirum á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 20–40 og greindust 20 með rhinoveiru í viku 44.
Innlagnir á Landspítala
Í viku 44 lágu 16 einstaklingar á Landspítala með inflúensu, níu 65 ára og eldri, fimm 15−64 ára, einn 1−2 ára og einn undir 1 ára. Einn einstaklingar lá inni með COVID-19 í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Staðan í Evrópu
Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leita til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn lítill. Hins vegar greina flest lönd frá aukningu eins og búast má við á þessum árstíma. Hingað til hefur svipuð aukning ekki sést hjá sjúklingum sem lagðir eru inn á sjúkrahús vegna öndunarfærasýkinga.
Útbreiðsla inflúensu og RS-veirusýkinga er enn lítil en farin að aukast í sumum löndum. Dreifing COVID-19 er enn víðtæk en heldur áfram að minnka, sem er svipuð þróun og á sama tíma í fyrra.
Aukning í útbreiðslu RS-veirusýkinga sést aðallega hjá börnum yngri en fimm ára, á meðan útbreiðsla inflúensu kemur helst fram hjá börnum yngri en 15 ára.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir