Laus störf sérfræðinga hjá sóttvarnalækni
9. apríl 2026
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða tvo sérfræðinga til starfa á sóttvarnasviði með áherslu annars vegar á sýkingavarnir og forvarnir og hins vegar viðbúnað og viðbragðsáætlanir.

Störfin eru fjölbreytt, áhugaverð og krefjandi þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku og þjónustulund. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi sérfræðingar vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sóttvarnasviðs, sem og aðra sérfræðinga innan og utan embættisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026
Nánari upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð og hæfniskröfur má finna á Starfatorgi
Sérfræðingur sýkingavarna
Sérfræðingur viðbragðsáætlana
Nánari upplýsingar
Guðrún Aspelund, gudrun.aspelund@landlaeknir.is, 510-1900
Þórgunnur Hjaltadóttir, thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is, 510-1900