Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ekki hafa greinst fleiri tilfelli mislinga

26. febrúar 2026

Í framhaldi af frétt sóttvarnalæknis þann 8. janúar síðastliðinn um að mislingar hefðu greinst hjá barni hér á landi 6. janúar vill sóttvarnalæknir upplýsa að engin ný tilfelli hafi greinst í kjölfarið.

Tími frá útsetningu til veikinda vegna mislinga er yfirleitt 7–14 dagar en getur verið allt að 21 dagur. Nú rúmlega 6 vikum síðar eru því yfirgnæfandi líkur á að hætta á útbreiðslu mislinga hér á landi vegna þessa tilfellis sé liðinn hjá. Fyrst og fremst er því að þakka góðri almennri bólusetningarstöðu gegn mislingum hérlendis.

Sóttvarnalæknir hvetur alla sem það á við til að þiggja bólusetningu gegn mislingum og huga að bólusetningarstöðu við ferðalög.

Aðgerðir sem gripið var til

Öllum sem hugsanlega urðu útsettir fyrir smiti vegna tilfellisins var tilkynnt um útsetninguna. Þar á meðal voru einstaklingar sem voru á sama tíma og hinn smitaði á Landspítala og í flugi til landsins. Viðeigandi aðilum var boðin bólusetning ef það átti við og/eða tryggð nauðsynleg eftirfylgd af hálfu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Mislingar í Evrópu

Mislingar eru bráðsmitandi sjúkdómur. Talið er að hver einstaklingur með mislinga geti smitað allt að 18 óbólusetta einstaklinga.

Mislingatilfellum fjölgaði verulega frá árinu 2023 til ársins 2024. Samkvæmt nýlegri frétt frá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) benda bráðabirgðatölur fyrir árið 2025 til þess að tilkynntum tilfellum í Evrópu hafi fækkað umtalsvert miðað við árið 2024. Þrátt fyrir það voru tilfelli árið 2025 um tvöfalt fleiri en árið 2023 og fleiri en flest ár frá árinu 2000.

Mislingar eru nú landlægir í 19 ríkjum Evrópu. Víða hefði mátt koma í veg fyrir fjölda tilfella með betri bólusetningarþekju og skjótari viðbrögðum við faröldrum.

Þar til 95% bólusetningarþekja hefur náðst alls staðar, vöktun smitsjúkdóma verið efld og tímanlega viðbrögð við faröldrum tryggð, mun mislingaveiran halda áfram að breiðast út. Auk þess að valda alvarlegum veikindum og jafnvel dauða geta mislingar haft í för með sér langtíma heilsufarslegar afleiðingar. Sjá frétt á vef WHO.

Í frétt á vef embættis landlæknis frá 12. janúar síðastliðnum, um mislinga á Íslandi í kjölfar nýlegs tilfellis, er nánar fjallað um stöðu á smita í Evrópu og á heimsvísu.

Bólusetningar eru helsta forvörnin

Til að viðhalda hjarðónæmi gegn mislingum þarf þátttaka í mislingabólusetningum helst að vera yfir 95% í almennum bólusetningum barna, sem einnig verndar ungbörn sem eru of ung til að bólusetja og aðra eins og þá sem eru ónæmisbældir sem bólusetning gegn mislingum er ekki ráðlögð.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur sérstaklega bent á að mislingar séu að breiðast út á ný í mörgum ríkjum þar sem þátttaka í bólusetningum hefur staðið í stað eða farið minnkandi.

Árið 2024 var þátttaka Í MMR bólusetningu á höfuðborgarsvæðinu 94% meðal 18 mánaða barna og 87% meðal 12 ára barna.

Þátttaka undir 90% á landsvísu eykur líkur á að mislingar geti náð fótfestu hérlendis ef smit berst til landsins.

Tveir skammtar af bóluefni gegn mislingum veita allt að 97% ævilanga vörn gegn mislingum.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir