Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Bætt framboð bóluefna fyrir fullorðna

2. júlí 2026

Á undanförnum vikum hafa tvö bóluefni verið markaðssett á Íslandi ætluð fullorðnum í áhættuhópum, vegna ristils annars vegar og pneumókokkasýkinga hins vegar.

Því hafa í fyrsta sinn verið birtar leiðbeiningar um notkun ristilbóluefnis á Íslandi, og uppfærðar leiðbeiningar um notkun pneumókokkabóluefna.

Bóluefni gegn ristli greiða einstaklingar sjálfir en fyrir fólk í áhættuhópum vegna pneumókokkasýkinga hefur verið gerð vinnuregla hjá Sjúkratryggingum sem nær til allra pneumókokkabóluefna sem leiðbeiningar sóttvarnalæknis ná til og er því hægt að sækja um greiðsluþátttöku á einstaklingsgrundvelli til Sjúkratrygginga vegna þeirra.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir