Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Alaskaösp

Aspartegundir

Vaxtarlag: Oftast beinvaxið tré, króna mjó til breið, misjöfn eftir klónum.

Vaxtarhraði: Oftast mikill en hægur í rýru mólendi.

Landshluti: Um land allt.

Sérkröfur: Ljóselsk tegund, þarf ferskan jarðvegsraka til að ná góðum vexti.

Styrkleikar: Hraður vöxtur, gott frostþol og saltþol eftir klónum, gott vindþol, ilmur, viður.

Veikleikar: Asparryð, misjafnt frostþol eftir klónum.

Athugasemdir: Alaskaösp er hraðvaxnasta trjátegund í íslenskri skógrækt og ein þeirra fjögurra tegunda sem mestar vonir eru bundnar við til timburframleiðslu og kolefnisbindingar. Kynbætur munu á komandi árum skila klónum sem eru betur aðlagaðir, ryðþolnari, beinvaxnari og gjöfulli en hingað til hefur þekkst.