Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Í fyrsta sinn tölulegt markmið um samdrátt losunar frá landi

22. september 2026

Votlendi verður endurheimt í haust á samtals 225 hekturum lands á ríkisjörðum. Á grundvelli nýrrar reglugerðar um stuðningskerfi landgræðslu og skógræktar er nú verið að þróa fjárhagslega hvata fyrir náttúrumiðaðar lausnir á einkalöndum. Íslensk stjórnvöld hafa nú í fyrsta sinn sett fram töluleg markmið um samdrátt losunar frá landi.

Þetta var meðal þess sem fram kom í kynningu Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra í morgun á nýjum losunartölum fyrir Ísland og stöðu loftslagsaðgerða. Ráðherra greindi frá því að samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfis- og orkustofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2025 væri Ísland langt á eftir áætlun og vinna þyrfti miklu hraðar ef ná ætti settum markmiðum landsins. Samkvæmt bráðabirgðatölunum dróst losun aðeins saman um 3,9 prósent 2025 frá árinu áður.

Lesa má um stöðu helstu losunarþáttanna í frétt á vef Stjórnarráðsins og þar er einnig að finna hlekk á kynningu ráðherra. Hvað varðar landnotkun kom fram í máli Jóhanns Páls að góður gangur væri í framkvæmd forgangsverkefnisins um endurheimt vistkerfa og votlendis sem stendur yfir. Orðrétt sagði ráðherra:

„Í haust verða endurheimtir samtals 225 hektarar votlendis á fimm ríkisjörðum. Það jafngildir 315 fótboltavöllum í fullri stærð. Við mokum ofan í 23 kílómetra af framræsluskurðum, sem er álíka vegalengd og frá Hveragerði til Þorlákshafnar“

Undirbúningsvinnan fyrir þessi verkefni hefur staðið yfir undanfarið ár. Jafnframt undirritaði ráðherra í byrjun ársins nýja reglugerð um umfangsmeira hvata- og stuðningskerfi við landgræðslu og skógrækt. Á grundvelli hennar er nú unnið að því að þróa fjárhagslega hvata fyrir náttúrumiðaðar aðgerðir á einkalöndum, enda segir Jóhann Páll nauðsynlegt að bændur og aðrir landeigendur komi með í verkefnið og geti verndað og endurheimt vistkerfi samhliða sjálfbærri nýtingu lands.

Á könnu Lands og skógar er að taka saman og reikna út tölur um losun vegna landnotkunar og skógræktar sem birtast í loftslagsbókhaldi landsins. Nicole S. Keller, sérfræðingur á Umhverfis- og orkustofnun, gerði á fundinum grein fyrir losun af mannavöldum innan landamæra Íslands. Þar kom fram að losun vegna landnotkunar, sem að stórum hluta stafar af framræstu landi, nam um 6,1 milljón tonna árið 2025 sem var 2,2 prósentum minna en árið áður. Aukin binding með skógrækt og endurheimt þurrlendis og votlendis dregur úr heildarlosun vegna landnotkunar.

Í skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða kemur fram að nú sé í fyrsta sinn sett fram tölulegt markmið um samdrátt losunar frá landi. Landsákvarðað framlag Íslands til 2035 felur meðal annars í sér 50%-55% samdrátt samfélagslosunar árið 2035 miðað við 2005 og samdrátt losunar frá landi á sama tímabili um 400-500 þúsund tonn af koltvísýringsígildum. Að ná þessum markmiðum er ekki á ábyrgð hins opinbera eingöngu heldur segir í skýrslunni að þátttaka einstaklinga, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í undirbúningi og framkvæmd aðgerða í landgræðslu og skógrækt sé lykilatriði til að ná megi markmiðum í loftslagsmálum og markmiðum um líffræðilega fjölbreytni í tengslum við landnotkun. Því sé mikilvægt að endurskoða og efla stuðningskerfi ríkisins þannig að það verði enn skilvirkara hvað varðar fjármögnun aðgerða á einkalöndum. Jafnframt þurfi að skýra hvernig Land og skógur nálgast samfélagið með virkum hætti, meðal annars með miðlun, ráðgjöf og hvatningu til þátttöku í aðgerðum.

Hvað varðar landnotkun og loftslagsmál nefndi ráðherra jafnframt að Loftslags- og orkusjóður hefði stutt við 42 verkefni í landbúnaði í mars á þessu ári, meðal annars verkefni sem snúa skilvirkari áburðardreifingu eða með öðrum orðum betri nýtingu á tilbúnum áburði.

Gera má ráð fyrir því að innan tíðar verði hægt að greina frá formlegu upphafi endurheimtar votlendis á ríkisjörðum. Vonast er til að ráðherra setji þar sjálfur fyrstu skóflufyllina ofan í skurð. Í kjölfarið skýrist hvar þessir 23 kílómetrar af framræsluskurðum eru, sem fyllt verður í nú á haustmánuðum.

Fréttin á vef Stjórnarráðsins

Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða

Horfa á kynningarfund umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Myndir af vef Stjórnarráðsins