Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

400 Bonn-hektarar í sumar og annað eins í haust

3. september 2026

Áður en vinnu við gróðursetningu lýkur í haust hefur verið gróðursett á aðra milljón birkiplantna í Bonn-verkefnum á vegum Lands og skógar þetta árið. Verið er að taka út árangurinn þessa dagana á þeim tæplega 400 hekturum sunnanlands og norðan sem þegar hefur verið gróðursett í. Plönturnar líta í heild vel út og lofa góðu um árangurinn.

Plöntuflutningar vegna Bonn-verkefnanna. Ljósmynd: Berglind Guðjónsdóttir

Verktakar á vegum Lands og skógar hafa séð um alla gróðursetningu birkisins að þessu sinni. Endurheimt birkiskóga undir merkjum Bonn-áskorunarinnar fer að miklu leyti fram á illa förnu landi sem í flestum tilfellum hefur verið undirbúið með uppgræðslu áður en til gróðursetningar trjáplantna kemur.

Birki er þurftafrek tegund sem á erfitt með að spjara sig hjálparlaust í rýru landi og því var áburði dreift með öllum plöntum sem gróðursettar voru í vor og byrjun sumars. Áburðarmál í þessum verkefnum eru í stöðugri þróun og endurskoðun í því augnamiði að bæta árangur en einnig að draga úr notkun tilbúins áburðar. Ókostir tilbúins áburðar eru meðal annars að hann leysist fljótt upp og alltaf er hætta á að áburðarefnin skolist burt án þess að nýtast þeim gróðri sem þeim eru ætluð. Í vor fékk hluti af gróðursettum birkiplöntum seinleystan áburð af gerðinni Osmocote, sem á að endast lengur í jarðveginum en venjulegur tilbúinn áburður. Áhugavert verður að sjá hvernig hann reynist í þessum verkefnum.

Fyrstu úttektir lofa góðu

Þessa dagana er verið að mæla lifun og fleiri þætti sem snerta árangursmat gróðursetningarinnar frá í vor og byrjun sumars. Við fyrstu sýn líta plönturnar vel út eins og sést á meðfylgjandi myndum. Gæðaúttektir hafa þegar farið fram á Hekluskógasvæðinu og í landi Hafragils í Laxárdals á Skaga en nú eru úttektir í gangi á Hólasandi norðan Mývatnssveitar og í Ærlækjarseli Öxarfirði. Á haustmánuðum verður svo haldið áfram gróðursetningu birkis í vel valin svæði.

Berglind Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Landi og skógi, hefur umsjón með Bonn-verkefnum. Hún segir að við fyrstu sýn líti birkið sem gróðursett var í Hekluskógum mjög vel út. Plönturnar virðist kröftugar og lausar við óværu og önnur sýnileg áföll.

Sjálfsáning mikilvægur þáttur

Bonn-verkefnin eru snar þáttur í þeirri viðleitni íslenskra stjórnvalda að breiða út birkiskóglendi á Íslandi með því markmiði að það þeki í það minnsta fimm prósent landsins áður en langt um líður. Hugmyndin er að útbreiðslan verði að miklu leyti með sjálfsáningu birkisins út frá gróðursettum svæðum enda er birki frumherjaplanta sem breiðist hratt út ef skilyrði til þess eru fyrir hendi. Mikilvægur liður í því starfi er að skapa skilyrði fyrir slíka sjálfsáningu með því að koma gróðurframvindu af stað á örfoka svæðum og styrkja þann gróður sem fyrir er. Kjötmjöl hefur reynst mjög vel í þessu skyni á Hekluskógasvæðinu og nú í sumar var í fyrsta sinn dreift kjötmjöli á Bonn-svæði á Norðurlandi eins og við sögðum frá hér á vef Lands og skógar fyrr í sumar.

Rúm hálf milljón birkiplantna komin niður

Hér að neðan eru sundurliðaðar tölur um gróðursetningu birkis í Bonn-verkefnum í vor og fyrri hluta sumars, fjölda gróðursettra plantna og fjölda þeirra hektara sem gróðursett var í. Meðalfjöldi plantna á hektara er um 1.250.

Steinkrossheiði ofan Gunnarsholts

  • gróðursett í um 125 hektara

  • um 120 þúsund plöntur

Vesturhraun ofan Gunnarsholts

  • Gróðursett í um 133 hektara

  • um 152 þúsund plöntur

Hafragilsgirðing í Laxárdal á Skaga
  • Gróðursett í um 35 hektara

  • um 70 þúsund plöntur

Hólasandur norðan Mývatnssveitar

  • Gróðursett í um 70 hektara

  • um 162 þúsund plöntur

Ærlækjarsel, Öxarfirði

  • Gróðursett í um 24 hektara

  • um 50 þúsund plöntur

Samtals hafa því nú þegar verið gróðursettar um 550 þúsund birkiplöntur í um 390 hektara. Enn er þó ekki allt búið því annað eins á eftir að setja niður í haustgróðursetningunni. Þegar upp verður staðið í haust verður því rúmlega ein milljón birkiplantna komin niður í Bonn-verkefnum þetta árið.

Tilvonandi birkiskóglendi með Heklu í baksýn. Ljósmynd: Berglind Guðjónsdóttir

Tengd frétt: Um þúsund hektarar fá kjötmjöl í ár (6. júlí)