Vel heppnuð vinnustofa
6. nóvember 2026
Dagana 3. til 4. nóvember síðastliðinn fór ráðstefnan Nordic Energy Impact Days fram í Kaupmannahöfn.
Tryggvi Hallgrímsson og Sæunn Gísladóttir á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Mynd/NER
Dagana 3. til 4. nóvember síðastliðinn fór ráðstefnan Nordic Energy Impact Days fram í Kaupmannahöfn. Ráðstefnan var skipulögð af Nordic Energy Research (NER).
Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, og Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, vinna um þessar mundir að rannsóknarverkefninu Energising Nordic Equality fyrir NER. Þau stýrðu vinnustofu um kynjajafnrétti í orkugeiranum á ráðstefnunni.
Vinnustofan heppnaðist vel og tóku um 100 ráðstefnugestir þátt í henni. Þar voru kynntar fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar Energising Nordic Equality og í kjölfarið fór fram hópavinna þar sem sjónum var beint að tengslum markmiðasetningar og árangurs í jafnréttismálum. Þátttakendur greindu jafnframt ólíkar víddir kynjajafnréttis í smærri hópum.
Á ráðstefnunni kynntu rannsakendur fjölbreytt rannsóknarverkefni sem hlotið hafa styrki frá NER, meðal annars á sviði vetnis og orkuskipta. Gert er ráð fyrir að rannsóknarverkefninu Energising Nordic Equality ljúki á fyrri hluta næsta árs.
