Fara beint í efnið
Jafnréttisstofa Forsíða
Jafnréttisstofa Forsíða

Jafnréttisstofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjónvarpsþáttaröðin HVERS VEGNA EKKI?!

20. mars 2020

Sjónvarpsþáttaröðin HVERS VEGNA EKKI?! - frábærir framhaldsþættir sem slegið hafa í gegn víða í Evrópu og hafa hlotið fjölda viðurkenninga. Hvers vegna ekki?! fjallar um ævintýralegt ferðalag Önnu Sooväli frá því að vera bekkjarlúðinn í að verða hin ofursvala rappstjarna NoJik. Auk þess fáum við að fylgjast með fjölskyldu- og félagslífi Önnu, sem er vægast sagt viðburðaríkt. Hver þáttur er u.þ.b. 28 mínútur og þættirnir eru 10 talsins og eru textaðir á íslensku.

Sjónvarpsþáttaröðin HVERS VEGNA EKKI?! - Frábærir framhaldsþættir sem slegið hafa í gegn víða í Evrópu og hafa hlotið fjölda viðurkenninga.

Hvers vegna ekki?! fjallar um ævintýralegt ferðalag Önnu Sooväli frá því að vera bekkjarlúðinn í að verða hin ofursvala rappstjarna NoJik. Auk þess fáum við að fylgjast með fjölskyldu- og félagslífi Önnu, sem er vægast sagt viðburðaríkt. Hver þáttur er u.þ.b. 28 mínútur og þættirnir eru 10 talsins og eru textaðir á íslensku (velja cc á stikunni undir þáttunum) 

 

Sjónvarpsþættirnir taka á kynjuðum staðalmyndum og mismunun á kómískan hátt. Þættirnir eru afrakstur verkefnis sem Jafnréttisstofa vann í samstarfi við jafnréttisstofnanir í Eistlandi og Litháen um afnám kynjaðra staðalmynda í tengslum við náms- og starfsval. Þáttunum fylgja kennsluleiðbeiningar sem geta nýst kennurum og starfsráðgjöfum við jafnréttisfræðslu. Verkefnið var styrkt af Evrópusambandinu. 

Hér má finna þættina.

Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12