Ný skýrsla um karla, karlmennsku og jafnrétti á Norðurlöndum
2. október 2026
Ný skýrsla Equimundo er komin út.

Ný skýrsla Equimundo, State of Nordic Men 2026, varpar ljósi á viðhorf karla á Norðurlöndum til karlmennsku, kynjajafnréttis, samskipta, samfélagsmiðla, eigin heilsu, efnahagslegs öryggis og trausts til stofnana og lýðræðis. Rannsóknin var unnin að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og byggir á svörum 4.547 einstaklinga á aldrinum 18-45 ára í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Íslandi.
Stuðningur karla við kynjajafnrétti er almennt mikill og skýrsluhöfundar benda á að hugmyndir norrænna karla um æskilega karlmennsku tengist gjarnan umhyggju, þátttöku og tengslum við aðra.
Í skýrslunni koma þó fram vísbendingar um að hefðbundnar og þrengri hugmyndir um kynhlutverk hafi þó hljómgrunn meðal hluta karla. Yngri karlar eru líklegri en eldri hópar til að aðhyllast hefðbundnar hugmyndir um kynhlutverk og lýsa minni stuðningi við kynjajafnrétti.
Skýrslan sýnir jafnframt tengsl milli efnahagslegs óöryggis og afturhaldssamari hugmynda um karlmennsku. Skýrslan sýnir að efnahagslegt óöryggi tengist auknum líkum á svokallaðri gremjuhugsun (e. grievance-based thinking), þ.e. hugmyndum um að karlar séu að glata stöðu sinni, hlutverkum eða sitji eftir í samfélagsbreytingum nútímans. Efnahagslegt óöryggi tengist jafnframt minna trausti til opinberra stofnana og lýðræðislegrar þátttöku.
Jafnréttisstofa tók þátt í ráðgjafarhópi rannsóknarinnar
Fulltrúar Jafnréttisstofu sátu í ráðgjafarhópi sem studdi við framkvæmd rannsóknarinnar. Í hópnum sátu einnig sérfræðingar frá fræðasamfélaginu og félagasamtökum á Norðurlöndum. Hlutverk hópsins var meðal annars að yfirfara spurningalista og þýðingar með tilliti til aðstæðna og samhengis í hverju landi.
Niðurstöður þarf að túlka með hliðsjón af úrtakinu
Mikilvægt er að hafa aðferð rannsóknarinnar í huga þegar niðurstöður einstakra landa eru skoðaðar. Úrtakið var ekki hreint tilviljunarúrtak. Þátttakendur voru fengnir úr netpanelum og notað var markmiðs- og kvótaúrtak til að tryggja ákveðna samsetningu hópsins. Karlar voru jafnframt vísvitandi fleiri í úrtakinu en konur til að auðvelda greiningu á reynslu og viðhorfum karla. Rannsakendur greina frá því að á Íslandi hafi ekki náðst full stærð úrtaksins vegna smæðar þjóðarinnar. Íslenski hluti úrtaksins varð því 547 manns. Karlar voru 82% íslenska úrtaksins og konur 18%. Skýrsluhöfundar taka fram að þátttakendur í netpanelum geti verið frábrugðnir almenningi hvað varðar viðhorf og hegðun og að fara þurfi varlega þegar niðurstöðurnar eru túlkaðar.
Rannsóknin veitir þó afar gagnlegar vísbendingar um viðhorf og hugmyndir sem finna má meðal karla á Norðurlöndum. Hún gefur sérstakt tilefni til áframhaldandi umræðu um stuðning við markmið kynjajafnréttis og umræðu um áhrif neikvæðra kynjaímynda og neikvæðra staðalímyndir um hlutverk kynjanna.
