Fara beint í efnið
Jafnréttisstofa Forsíða
Jafnréttisstofa Forsíða

Jafnréttisstofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Herferðin Þú átt von tilnefnd til Lúðursins

1. mars 2019

Herferðin Þú átt VON sem Jafnréttisstofa gerði í samstarfi við ENNEMM og Sagafilm er tilnefnd til Lúðursins í flokki almannaheillaauglýsinga! ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa, stendur að veitingu Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna og verða þau veitt þann 8. mars nk.

Herferðin Þú átt VON sem Jafnréttisstofa gerði í samstarfi við ENNEMM og Sagafilm er tilnefnd til Lúðursins í flokki almannaheillaauglýsinga!

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa, stendur að veitingu Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna og verða þau veitt þann 8. mars nk.

Á vefsíðu okkar Þú átt von má sjá auglýsingarnar og fræðast um verkefnið Byggjum brýr – brjótum múra en það snýst um samvinnu í heimilisofbeldismálum. Jafnréttisstofa hlaut styrk úr áætlun Evrópusambandsins um réttindi, jafnrétti og borgararétt til að standa straum að verkefninu, og er það unnið í samstarfi  við dómsmálaráðuneytiðvelferðarráðuneytiðRíkislögreglustjóraLögregluna á höfuðborgarsvæðinuLögregluna á Norðurlandi eystra, Lögregluna á SuðurnesjumReykjavíkurborg og Akureyrarbæ.

Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12