Ísland.is appið
Með ríkið í vasanum
30. desember 2022
Viðburðarríkt ár en senn á enda og við tekur nýtt ár með nýjum tækifærum. Við árslok er mér efst í huga þakklæti til alls starfsfólks fyrir samstöðu og seiglu. Þótt heimurinn hafi opnast á ný í framhaldi af heimsfaraldri blasa áfram við margvísleg verkefni og er það einlæg von mín að komandi ár færi okkur þá gæfu að mannkyninu takist að leiða ágreininga til lykta án átaka.
23. desember 2022
Kærar jólakveðjur frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
15. desember 2022
Gleðistund var á Móbergi 13. desember síðastliðinn þegar Grétar Örvarsson og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir héldu tónleika fyrir íbúa.
1. desember 2022
Þann 29. nóvember 2022 komu formenn kvenfélaga á Suðurlandi ásamt formanni Sambands sunnlenskra kvenna (SSK) í heimsókn á HSU. Tilefnið var að þakka þeim sérstaklega fyrir gjafir sem þau gáfu á Covid tímabilinu.
25. nóvember 2022
HSU hefur hefur fengið viðurkenninguna að mega bera titilinn heilsueflandi vinnustaður, samkvæmt Embætti landlæknis.
Þann 22. nóvember 2022 var undirritaður samningur við Öryggsmiðstöð Íslands um kaup á mælitækjum og leigu á hugbúnaði fyrir fjarheilbrigðisþjónustu. Þetta er mikil tímamót og bylting í að bæta þjónustu HSU og efla nýja Öldrunar- og Heimaspítala þjónustu HSU.
Í dag þann 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og mun átakinu ljúka þann 10. desember, sem er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur.
17. nóvember 2022
Hópur frá Hrafnistu kom í ánægjulega heimsókn til HSU.
10. nóvember 2022
Nýverið var haldið Nýsköpunarmót á vegum Ríkisstjórnar Íslands þar sem Guðný Stella Guðnadóttir, öldrunarlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, var með erindi um Heimaspítala HSU, frumkvöðlaverkefni sem verið er að innleiða um þessar mundir.
31. október 2022
þann 27. október 2022 afhenti Lionsklúbburinn Embla og Lionsklúbbur Selfoss formlega til Lyflækningadeildar HSU á Selfossi líknarrúm af nýjustu gerð ásamt náttborði, loftdýnu og fleiri fylgihlutum.