Árlegar bólusetningar hefjast í október
25. september 2024
Árlegar bólusetningar við inflúensu og Covid-19 hefjast hjá HSN í október.
Boðið verður upp á bólusetningar við inflúensu og Covid-19 fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og fyrir fólk í áhættuhópum á öllum heilsugæslustöðvum HSN í október.
Nánari upplýsingar um tímasetningu bólusetninga er að finna á þessum hlekk: Bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Öll börn fædd 1.1.2020–30.6.2024, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Ekki þarf að greiða fyrir bólusetningar 60 ára og eldri og fólks í áhættuhópum.
Boðið verður upp á að fá bæði bóluefnin í sömu heimsókn. Einnig verður hægt að velja að fá annað hvort bólusetningu við inflúensu eða Covid-19.
Upplýsingar um áhættuhópa og nánari upplýsingar um bóluefnin má finna á vef embættis landlæknis.