Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Almenningur og hagsmunaaðilar

Eitt markmiða umhverfismats framkvæmda er að tryggja aðkomu almennings að umhverfismati og samvinnu þeirra aðila sem hafa hagsmuni að gæta eða láta sig málið varða.

Á Skipulagsgátt, samráðsgátt um skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og framkvæmdaleyfi, má finna upplýsingar um mál í vinnslu, gera athugasemdir við mál á kynningartíma og nálgast endanleg gögn og afgreiðslu mála.

Markvisst samráð við almenning og hagaðila frá upphafi umhverfismatsferlisins getur:

  • Aukið sátt um framkvæmdir.

  • Skilað gagnlegum upplýsingum inn í matsvinnuna, til að mynda frá heimamönnum sem oft hafa góða staðbundna þekkingu á umhverfi og aðstæðum. Sú þekking getur nýst við hönnun framkvæmdar og mat á umhverfisáhrifum hennar.

Hverjir geta gefið umsagnir og hvað verður um þær?

Allir geta veitt umsögn og komið á framfæri sínum sjónarmiðum um framkvæmdir og umhverfismat þeirra. Umsagnir sem berast á kynningartíma matsáætlunar og umhverfismatsskýrslu eru hluti þeirra gagna sem HMS tekur afstöðu til þegar unnið er að áliti stofnunarinnar um matsáætlun og umhverfismat framkvæmdar.

Kynning og samráð við umhverfismat