Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um umhverfismat framkvæmda

Umhverfismat framkvæmda felst í að meta og upplýsa um líkleg áhrif tiltekinna framkvæmda á umhverfið. Áhrifin eru greind, vægi þeirra metið og lagt til hvernig bregðast skuli við þeim.

Niðurstaða umhverfismats er notuð til að ákveða hvort veita eigi leyfi til framkvæmdar. Ef leyfi er veitt, eru niðurstöður umhverfismats nýttar við útfærslu framkvæmdar til að takmarka neikvæð áhrif hennar á umhverfið.

Umhverfismati framkvæmda er ætlað að:

  • Tryggja að áhrif tiltekinna framkvæmda á umhverfið hafi verið metin áður en ákvarðanir um leyfisveitingar eru teknar.

  • Tryggja að almenningur eigi kost á að taka þátt í og hafa áhrif á umhverfismat.

  • Benda á hvernig bregðast megi við neikvæðum afleiðingum framkvæmda með mótvægisaðgerðum og við hönnun framkvæmda.

Í lögum um umhverfismat kemur fram hvaða framkvæmdir eru ávallt háðar umhverfismati og hvaða framkvæmdir eru tilkynningarskyldar. Meta þarf í hverju tilviki hvort tilkynningarskyldar framkvæmdir skuli gangast undir umhverfismat.

Hlutverk aðila við umhverfismat framkvæmda