Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Tilkynningarferli

Framkvæmdir í flokki B í 1. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana þarf að tilkynna til HMS sem metur í hverju tilviki hvort þær skuli háðar umhverfismati.

Það sama á við þegar fyrirhuguð framkvæmd er undir viðmiðunarmörkum sem tilgreind eru í viðaukanum, en er á verndarsvæði.

Ferli við ákvörðun um matsskyldu fyrir tilkynningarskyldar framkvæmdir er eftirfarandi:

  • Framkvæmdaraðili sendir tilkynningu um framkvæmd til HMS sem tekur ákvörðun í hverju tilviki hvort framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

  • Í tilkynningu gerir framkvæmdaraðili grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd, staðsetningu og helstu mögulegu áhrifum hennar og óskar eftir að stofnunin taki ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati.

  • HMS leitar umsagna umsagnaraðila eftir eðli máls hverju sinni, svo sem til leyfisveitenda eða fagstofnana. Framkvæmdaraðila er gefinn kostur á að bregðast við umsögnum áður en HMS tekur ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati. Ákvörðun stofnunarinnar er auglýst, birt á Skipulagsgátt og kynnt á vef HMS.

Ef ákveðið er að framkvæmdin þurfi umhverfismat, hefur framkvæmdaraðili umhverfismatsferli.

Ákvarðanir HMS um matsskyldu framkvæmda í flokki B má nálgast í gagnagrunni umhverfismats.

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda