Rafræn samskipti
Um sendingu og móttöku rafrænna gagna
Heimilt er að senda dómstólum tilkynningar og gögn á rafrænu eða stafrænu formi, sbr. 1. gr. a. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 2. gr. a. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Dómari getur þó ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram í dómi telji hann það nauðsynlegt svo sem fyrir sönnunarfærslu málsins.
Sjá nánar í reglum dómstólasýslunnar um form, afhendingarmáta og staðfestingu skjala í dómsmálum nr. 1662/2024 og ákvörðun dómstólasýslunnar um skjöl sem berast skuli dómstóli í gegnum réttarvörslugátt.
Ef upp koma vandamál við notkun ætti að hafa samband við viðkomandi dómstól.
Aðrar gáttir en réttarvörslugáttin eru tímabundnar lausnir þar til réttavörslugáttin hefur verið þróuð og innleidd.
Vefgátt dómstóla
Almenn innsending gagna í öðrum málum en rannsóknarmálum er í gegnum vefgátt dómstóla.
Leiðbeiningar:
Rannsóknarmál og ákærumál
Gögn í rannsóknarmálum á ákærumálum eru send viðkomandi dómstól í gegnum réttarvörslugáttina.
Notaðu rafræn skilríki til þess að skrá þig inn. Gættu þess að kveikt sé á símanum eða hann ólæstur.