Héraðsdómstólar
Héraðsdómstólar eru fyrsta dómstigið af þremur. Þeir eru eru átta talsins og með staðbundna lögsögu. Dómum þeirra má áfrýja til Landsréttar eða, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, til Hæstaréttar.
Dómarar
Dómarar í héraði eru 42 að tölu og skipaðir ótímabundið í embætti. Dómstólasýslan ákveður við hvaða héraðsdómstól dómarar skuli eiga fast sæti en heimilt er að ákveða að allt að þrír héraðsdómarar eigi ekki fast sæti við tiltekinn dómstól. Til aðstoðar dómurum má ráða lögfræðinga til fimm ára í senn.
Dómstjórar
Dómstólasýslan skipar dómstjóra við hvern héraðsdómstól en dómstjórar ráða aðra starfsmenn en dómara. Auk þess að gegna dómstörfum er dómstjóri forstöðumaður héraðsdómstóls og ber ábyrgð á starfsemi hans.
Regluleg dómþing
Regluleg dómþing
1. fimmtudag hvers mánaðar kl. 14.
Fimmtudaga kl. 13:30.
2. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.
Miðvikudaga kl. 9.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.
1. og 3. miðvikudag hvers mánaðar kl. 14.
1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 14.
1. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.
Regluleg dómþing í einkamálum eru ekki haldin:
í júlí og ágúst,
frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum,
á lögboðnum frídögum.
Lög um héraðsdómstóla
Héraðsdómar starfa samkvæmt lögum nr. 50/2016.
Umdæmi er ein dómþinghá, samanber fyrstu grein reglugerðar nr. 1109/2010.
