Dómsmálagjöld hjá héraðsdómstólum
Dómsmálagjöld eru innheimt skv. lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs.
Gjöld | Upphæð |
|---|---|
Fyrir útgáfu stefnu | 20.000 krónur |
Af stefnufjárhæð allt að 3.000.000 kr. | 20.000 krónur |
Af stefnufjárhæð frá 3.000.000 kr. að 30.000.000 kr. og vegna mála þar sem krafist er viðurkenningar á réttindum og/eða skyldu | 42.000 krónur |
Af stefnufjárhæð frá 30.000.000 kr. að 90.000.000 | 122.000 krónur |
Af stefnufjárhæð frá 90.000.000 kr. að 150.000.000 kr. | 202.000 krónur |
Af stefnufjárhæð frá 150.000.000 kr. og fjárhæðum umfram það | 337.000 krónur |
Þingfestingargjald er greitt fyrir sakaukasök, gagnsök, meðalgöngusök og framhaldssök.
Gjöld | Upphæð |
|---|---|
Ágreiningsmál vegna nauðungarsölu o.fl. | 20.000 krónur |
Beiðni um aðfararheimild | 20.000 krónur |
Beiðni um heimild til að leita nauðasamninga (nema nauðasamninga til greiðsluaðlögunar) | 20.000 krónur |
Beiðni um heimild til greiðslustöðvunar | 20.000 krónur |
Beiðni um opinber skipti | 20.000 krónur |
Dómkvaðning matsmanna | 20.000 krónur |
Krafa um gjaldþrotaskipti | 20.000 krónur |
Krafa um niðurfellingu heimildar til að leita nauðasamninga (nema nauðasamninga til greiðsluaðlögunar) | 20.000 krónur |
Krafa um niðurfellingu heimildar til greiðslustöðvunar | 20.000 krónur |
Krafa um staðfestingu nauðasamnings (nema nauðasamnings til greiðsluaðlögunar) | 20.000 krónur |
Sjópróf og önnur sönnunarfærsla fyrir héraðsdómi | 20.000 krónur |
Stefnuútgáfa | 20.000 krónur |
Vitnamál | 20.000 krónur |
Af tilgreindri fjárhæð í ágreiningsmáli vegna gjaldþrotaskipta og ágreiningsmálum vegna opinberra skipta á dánarbúum, opinberra skipta til fjárslita milli hjóna og sambúðarfólks og opinberra skipta til slita á félögum þar sem félagsmenn bera ótakmarkaða ábyrgð greiðist þingfestingargjald skv. a., b., c., d. og e. lið 2. tl. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eftir því sem við á.
Kærugjald til Landsréttar (ekki rannsóknarúrskurðir) | 70.000 krónur |
Heiti | Upphæð |
|---|---|
Afritun og afhending gagna með rafrænum hætti hver blaðsíða allt að 10 blaðsíður | 300 krónur |
Afritun umfram 10 blaðsíður hver blaðsíða | 150 krónur |
Búsforræðisvottorð (forræðisvottorð) | 2.500 krónur |
Staðfesting dómsgerða | 2.200 krónur |
Endurrit eða ljósrit hver síða | 300 krónur |
Eftirgerð af hljóðupptöku 60 mínútur | 900 krónur |
Eftirgerð af hljóðupptöku 90 mínútur | 1000 krónur |
Engin gjöld greiðast í eftirfarandi málum
Málum til innheimtu vinnulauna.
Barnsfaðernismálum.
Málum til vefengingar á faðerni barns.
Lögræðissviptingarmálum.
Kjörskrármálum.
Einkarefsimálum.
Gjafsóknarmálum að því leyti sem gjald yrði lagt á gjafsóknarhafa.
Forsjármálum.
Málum v/bráðabirgðaforsjár og farbanns barna,
Barnaverndarmálum og afhendingarmálum skv. lögum nr. 160/1995 (afhending barns).
Félagsdómsmál, nema ritlaun (endurrit).