Ákærða var gefið að sök að hafa ráðið A bana í íbúð A í Kópavogi 28. nóvember 2025. Af hálfu ákærða var meðal annars á því byggt að um sjálfsvíg gæti verið að ræða. Fjölskipaður héraðsdómur taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að A hafi verið myrtur í íbúð sinni í lok nóvember 2025. Meirihluti dómenda taldi hins vegar ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði væri banamaður A og var hann því sýknaður. Einn dómari skilaði séráliti og taldi fram komna lögfulla sönnun þess að ákærði væri sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru.
Ákærði var fundinn sekur um nytjastuld, umferðarlagabrot, fjársvik, eignaspjöll og þjófnað. Var honum gert að sæta fangelsi í 22 mánuði jafnframt sekt og sviptingu ökuréttar ævilangt. Þá var ákærða gert að greiða sakarkostnað, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu skaðabóta.
Ákærði var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í sölu og dreifingarskyni og jafnframt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot vegna aksturs sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var ákærði dæmdur til 6 mánaða fangelsisvistar, en 5 mánuðir refsingarinnar skilorðsbundnir. Þá var ákærði sviptur ökuréttindum ævilangt.