Leiðbeiningar um leit í dómasafni
Almenn leit

Leitarstrengurinn leitar í öllum dómum og skilar víðtækum niðurstöðum.
Til að leita að hluta úr orði skal setja * á eftir orðhlutanum.
Til að leita að orðasamböndum skla setja í leitargluggann orðið og eða orðið eða.
Ekki er þörf á að nota gæsalappir til þess að afmarka leit.
Ítarleit

Málsnúmer
Smellið hér til að fella saman glugga ítarleitar.
Hægt er að leita eftir málsnúmeri númer eða ártal. Fyrir málsnúmer héraðsdómstóla skal skrá bókstaf málategundar og bandstrik á undan númerinu, t.d. E-númer/ártal.
Bókstafi hverrar málategundar má sjá í leitarsíunni Málategundir

Lagagreinar
Nákvæmustu niðurstöður fást með því að leita á forminu ártal laga.númer laga.númer lagagreinar.númer málsgreinar
Í sumum dómum héraðsdómstóla hafa lagaákvæði verið skráð á forminu númer málsgreinar.númer lagagreinar.númer laga.ártal laga. Við leit að héraðsdómum getur því verið gagnlegt að prófa bæði skráningarformin.

Lykilorð
Hægt er að skrá fleiri en eitt lykilorð
Leit með lykilorði skilar aðeins dómum sem hafa verið tengdir því lykilorði sem valið er. Ólík lykilorð kunna ð hafa verið skrá á dóma þótt efni mála sé sambærilegt. Það getur verið ráðlegt að nota fleiri en eitt lykilorð.
Þá getur sama lykilorð verið ritað með ólíkum hætti. (t.d. Eignarnám annars vegar og Eignarnám. hins vegar eða Ábyrgð annars vegar og Ábyrgðir hins vegar.)

Málsaðili/lögmaður
Hægt er að leita eftir nafni málsaðila eða eftir nafni lögmanni sem skráður er á málið.
Ekki er þörf á að nota gæsalappir.

Málategundir
Listinn sýnir mismunandi málategundir allra dómstíga.
Hægt er að haka við málategundir til að afmarka leitina.

Dagsetning
Hægt er að afmarka leit að dómum eftir tímabilum með því að velja dagsetningu í reitinn frá og dagsetningu í reitinn til.

Hreinsa allar síur
Með því að smella hér er hægt að hreinsa allar leitarsíur í einu.