Afhending á hljóðupptökum
Héraðsdómstólarnir nýta Signet transfer til þess að afhenda lögmönnum hljóðupptökur úr málum.
Til þess að óska eftir hljóðupptökum í máli þarf að smella á hlekk viðkomandi dómstóls og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Við tekur ferli þar sem þarf að skrá inn málsnúmer og í framhaldinu undirrita trúnaðaryfirlýsingu með rafrænum hætti.
Dómstóllinn fær tilkynningu um að beiðni um hljóðupptöku og að undirrituð trúnaðaryfirlýsing hafi borist og sendir lögmanninum í kjölfarið upptökuna í gegnum Signet transfer miðlarann.
Tilkynning þess efnis berst á netfang lögmanns.