Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Útgáfa á öðru bindi Yfirréttarins á Íslandi

4. apríl 2022

Forseti Alþingis Birgir Ármannsson bauð til móttöku 31. mars sl. í tilefni af útgáfu á öðru bindi Yfirréttarins á Íslandi.

Alþingi samþykkti með þingsályktun á árinu 2019 að styrkja útgáfuna í tilefni af aldarafmæli Hæstaréttar Íslands 2020.

Útgáfuverkefnið er til tíu ára og verða bindin alls tíu með öllum tiltækum skjölum og dómum Yfirréttarins.

Sögufélaginu og Þjóðskjalasafni Íslands var falið að annast útgáfuna. Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður afhenti forseta Íslands, forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar eintök af fyrstu tveimur bindunum.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar