Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Tómas H. Heiðar forseti Alþjóðlega hafréttardómsins heimsækir Hæstarétt

29. febrúar 2024

Tómas H. Heiðar, forseti Alþjóðlega hafréttardómsins heimsótti í gær Hæstarétt, og átti fund með dómurum og starfsmönnum réttarins.

Tómas H. Heiðar, forseti Alþjóðlega hafréttardómsins heimsótti Hæstarétt,

Tómas H. Heiðar, forseti Alþjóðlega hafréttardómsins heimsótti í gær Hæstarétt, og átti fund með dómurum og starfsmönnum réttarins.

Hann gerði grein fyrir starfsemi dómsins og ræddi um nokkur áhugaverð mál sem þar hafa verið til meðferðar. Jafnframt svaraði hann spurningum og fjallaði um hlutverk sitt sem forseti dómsins.