Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þriggja þrepa dómskerfi - málþing

28. nóvember 2024

Fimmtudaginn 21. nóvember hélt Hæstiréttur og dómstólasýslan málþing í dómsal Hæstaréttar um þriggja þrepa dómskerfi, ávinningur og áskoranir.

Fimmtudaginn 21. nóvember hélt Hæstiréttur og dómstólasýslan málþing í dómsal Hæstaréttar um þriggja þrepa dómskerfi, ávinningur og áskoranir. Til málþingsins var boðið dómurum á öllum dómstigum ásamt lögfræðingum sem starfa hjá dómstólunum.

Málþinginu var skipt í tvo hluta en í þeim fyrri komu málflytjendur og fjölluðu um breytinguna sem varð á dómskerfinu árið 2018 frá þeirra sjónarhóli. Í þessum hluta tóku þátt lögmennirnir Berglind Svavarsdóttir, Óttar Pálsson og Stefán Andrew Svensson og Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari. Þessum hluta málþingsins stýrði Sigurður Tómas Magnússon, varaforseti Hæstaréttar.

Í síðari hluta málþingsins tóku þátt dómarar á öllum dómstigum til að fjalla um hvernig til hefði tekist. Í þeim hluta tóku þátt Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Eiríkur Jónsson, varaforseti Landsréttar, Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur. Þessum hluta málþingsins stýrði Kristín Haraldsdóttir.

Málþing 2024. Mynd 2

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar