Norræna málflutningskeppnin haldin í Reykjavík
8. júní 2026
Hinn 5. til 7. júní fór fram í Reykjavík árleg málflutningskeppni norrænna laganema. Af hálfu Íslands tók þátt í keppninni lið frá lagadeild Háskóla Íslands en það skipuðu Draupnir Dan Baldvinsson, Guðrún Sigríður Arnalds, Helga Margrét Ólafsdóttir, Jens Ingi Andrésson og Stefán Þórarinn Hermannsson.

Hinn 5. til 7. júní fór fram í Reykjavík árleg málflutningskeppni norrænna laganema. Af hálfu Íslands tók þátt í keppninni lið frá lagadeild Háskóla Íslands en það skipuðu Draupnir Dan Baldvinsson, Guðrún Sigríður Arnalds, Helga Margrét Ólafsdóttir, Jens Ingi Andrésson og Stefán Þórarinn Hermannsson. Aðalleiðbeinandi liðsins var Víðir Smári Petersen prófessor en aðrir þjálfarar voru Þorsteinn Davíð Stefánsson, Margrét Sjöfn Magnúsdóttir og Guðjón Þór Jósefsson. Árangur liðsins var mjög góður en það komst í undanúrslit. Einnig var Helga Margrét valin besti málflytjandinn í sínum riðli. Dómarar Norðurlandanna við Mannréttindadómstól Evrópu dæmdu í keppninni, þar með talið íslenski dómarinn Oddný Mjöll Arnardóttir. Jafnframt dæmdu í keppninni dómarar frá æðstu dómstólum landanna en af hálfu Hæstaréttar tóku þátt Benedikt Bogason, forseti réttarins, og Björg Thorarensen, hæstaréttardómari.