Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Norræna málflutningskeppnin

10. júní 2024

Hinn 6. til 9. júní sl. fór fram árleg málflutningskeppni norrænna laganema í Stokkhólmi. Af hálfu Íslands tók þátt í keppninni lið frá lagadeild Háskóla Íslands.

Hinn 6. til 9. júní sl. fór fram árleg málflutningskeppni norrænna laganema í Stokkhólmi. Af hálfu Íslands tók þátt í keppninni lið frá lagadeild Háskóla Íslands en það skipuðu þau Gísli Laufeyjarson Höskuldsson, Jón Sigfús Jónsson, Líney Helgadóttir, Sigurlaug Eir Þórsdóttir og Ylfa Helgadóttir. Aðalleiðbeinandi liðsins var Kristín Benediktsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Árangur liðsins var mjög góður en það komst í undanúrslit. Þeim árangri hefur lið frá Íslandi ekki náð frá árinu 2010.

Allir dómarar Norðurlandanna við Mannréttindadómstól Evrópu dæmdu í keppninni, þar með talið íslenski dómarinn Oddný Mjöll Arnardóttir. Jafnframt dæmdu í keppninni dómarar frá æðstu dómstólum landanna en af hálfu Hæstaréttar tóku þátt Benedikt Bogason, forseti réttarins, og Björg Thorarensen, hæstaréttardómari.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar