Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Málflutningskeppni um EES-rétt í Hæstarétti

17. mars 2026

Dagana 14. og 15. mars fór fram í Hæstarétti málflutningskeppni laganema um EES-rétt.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) stendur árlega fyrir þessari keppni í samstarfi við helstu háskóla á Íslandi og í Noregi. Keppnin fer fram til skiptis í löndunum. Að þessu sinni tóku þátt sautján lið frá Háskólanum í Björgvin, tvö lið frá Háskólanum í Reykjavík og eitt lið frá Háskólanum í Ósló.

Sigurlið keppninnar kom frá Háskólanum í Björgvin og var skipað Christian Espeseth, Felix Håkonsen Nessøe, Håvar Espe, Ida Rygg Krüger-Olsen og Olav Hegdahl en hann var valinn besti ræðumaður keppninnar.

Í úrslitaviðureigninni sátu eftirtalin í dómi: Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar Íslands, Árni Páll Árnason, varaforseti ESA, Fernando Castillo de la Torre, yfirlögfræðingur samkeppnis- og samrunamála hjá lögfræðiþjónustu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður og eigandi á lögmannsstofunni LOGOS, Margrét Einarsdóttir, prófessor og stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Dóra Sif Tynes, lögmaður og eigandi á lögmannsstofunni ADVEL og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri laga- og framkvæmdasviðs hjá ESA. Tímavörður úrslitaviðureignarinnar var Hildur Hjörvar, lögmaður hjá ESA.

Myndin var tekin við þetta tækifæri.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar