Heimsókn Hæstaréttar Póllands
18. maí 2026
Hæstiréttur Íslands tók á móti dómurum við Hæstarétt Póllands 8. og 11. maí 2026

Í september 2025 skipulagði Lögfræðingafélag Íslands ferð til Póllands en einn dagskrárliðurinn var heimsókn í Hæstarétt Póllands. Í þeirri heimsókn var Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, í fyrirsvari fyrir hópinn en einnig voru meðal þátttakanda Sigurður Tómas Magnússon, varaforseti réttarins, og Ólöf Finnsdóttir, skrifstofustjóri hans. Við þetta tækifæri átti Benedikt fund með fyrsta forseta Hæstaréttar Póllands, dr. Małgorzata Manowska.
Þetta var endurgoldið með heimsókn til Hæstaréttar frá Hæstarétti Póllands 8. og 11. maí. Fyrsti forseti Hæstaréttar Póllands var í fyrirsvari fyrir sendinefndina en að auki voru með henni hæstaréttardómararnir dr. Joanna Lemańska, dr. Joanna Misztal-Konecka og dr. Aleksander Stępkowski. Benedikt, Sigurður og Ólöf áttu fund með pólsku dómurunum í Hæstarétti og gerðu grein fyrir íslenskri dómstólaskipan og réttarfari. Jafnframt var rætt um ýmis málefni sem snerta dómstóla beggja landanna. Þá skoðuðu gestirnir húsakynni réttarins og hittu starfsfólk hans.