Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Heimsókn frá Verzlunarskóla Íslands

13. september 2023

Nemendur úr 3. D í Verzlunarskóla Íslands komu ásamt kennara sínum, Birni Jóni Bragasyni, í heimsókn í Hæstarétt í vikunni.

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Ása Ólafsdóttir, dómari við réttinn, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Jenný Harðardóttir, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti gestunum, kynntu starfsemi réttarins og réttarkerfið og svöruðu spurningum. Björn Jón Bragason færði Benedikt Bogasyni bókina „Lögfræði fyrir viðskiptalífið“ sem hann hefur skrifað og er kennslubók í lögfræði fyrir nemendur skólans.