Heimsókn frá Kvennaskólanum í Reykjavík
18. mars 2026
Í gær fékk Hæstiréttur heimsókn frá nemendum við Kvennaskólann í Reykjavík. Með þeim mætti kennari þeirra Valgerður S. Kristjánsdóttir. Benedikt Bogason forseti réttarins og Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri, tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og húsnæði og svöruðu spurningum. Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri.
